fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
Fókus

Viktor um fordóma á Landspítalanum – „Það voru ekki allir sáttir með ráðningu mína“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Þriðjudaginn 16. maí 2023 10:07

Viktor Andersen. Mynd/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hjúkrunarfræðingurinn Viktor Andersen opnar sig um fordóma sem hann hefur orðið fyrir á Landspítalanum.

„Á þessari mynd var ég að taka mín fyrstu skref sem hjúkrunarfræðinemi innan veggja Landspítalans fyrir þremur árum síðan. Fljótlega eftir að ég deildi þessari mynd á samfélagsmiðlum fékk ég að vita að það voru ekki allir sáttir með ráðningu mína. Ég ákvað að segja ekki neitt þá en hef hugsað mikið um það síðan, hvað fordómar geta eyðilagt út frá sér,“ segir hann.

Umrædd mynd.

„Þetta snerist um að einn af yfirmönnum hjúkrunar innan Landspítalans þurfti að tjá sig um ráðningu mína á 12G Hjarta-, lungna- og augnskurðdeild og þar með hugsanlega að hafa áhrif á ráðningu mína. Viðkomandi persónu hef ég aldrei hitt né talað við, en viðkomandi gat samt myndað sér skoðun á mér sem hjúkrunarfræðinema að þarna ætti ég ekki heima út frá þessari einu mynd. Viðkomandi fannst ég draga niður stétt hjúkrunarfræðinga og fannst greinilega neikvætt að ég yrði ráðinn inn fyrir veggi spítalans.”

Viktor hefur alla tíð verið opinn um kynhneigð sína og ófeiminn að ræða opinskátt um þær fegrunaraðgerðir sem hann hefur gengist undir. Hann hefur áður greint frá áreiti sem hann verður fyrir á netinu vegna útlits síns og kyntjáningar, en það er annað þegar fordómarnir eiga sér stað innan veggja vinnustaðarins.

Sjá einnig: Áhættusamar fegrunaraðgerðir – „Ég vona auðvitað að ég muni ekki reka nagla í eigin líkkistu“

Aldrei fundið fyrir fordómum frá sjúklingum

„Sem betur fer talaði starfsreynsla mín og meðmæli sínu máli og deildinni 12G tók vel á móti mér og tók ekki vel í þessa skoðun þessa einstaklings. Ég veit fyrir vissu að ég er vel liðinn af samstarfsfólki mínu, þau þreytast ekki á að segja mér það og þau treysta mér. Sjúklingarnir eru ánægðir með þá hjúkrun sem ég veiti, ég fæ kveðjur frá þeim eftir að heim er komið þar sem þeir vilja að ég viti hvað þeir mátu mig mikils,“ segir hann og bætir við:

„Þessi skoðun var einfaldlega byggð á hver ég er sem manneskja og viðkomandi gaf sér fyrirfram einhverja skoðun á mér í gegnum samfélagsmiðla. Ráðning mín á að vera óháð kynhneigð og kyntjáningu. Ég er svo þakklátur fyrir samstarfsfólkið mitt, það stóð með mér, þjálfuðu mig og gáfu mér tækifæri og ég fæ að vera ég sjálfur. Ég elska starfið mitt og á 12G finnst mér best að vera enda er starfsandinn þar rosalega góður. En ég er langt í frá fullkominn og ég reyni alltaf að gera betur í dag en í gær.“

Mynd/Instagram

Viktor opnaði sig um málið á Instagram og segir í samtali við DV að þrátt fyrir að árið sé 2023 séu enn miklir fordómar til staðar. Sem betur fer stóðu hinir starfsmenn deildarinnar á bak við hann.

„Mér leið vel í vinnunni á deildinni því að ég vissi að þar stæðu allir með mér og líður ennþá vel. En þegar ég heyrði þetta fyrst þá hugsaði ég: Enn og aftur upplifi ég eins og ég þurfi að sanna mig 10 sinnum betur en aðrir bara fyrir það að vera ég sjálfur. En það fór fljótt af mér því deildin var og er með mér í liði. Þrátt fyrir að það sé komið árið 2023 eru ennþá miklir fordómar í gangi, það leynist víða og það sem er athyglisvert er að sumt heilbrigðisstarfsfólk er að fara í manngreiningarálit þegar okkar starf snýst um að allir eru jafnir og eiga rétt á sömu meðferð. En svo aftur á móti hef ég aldrei upplifað fordóma frá sjúklingum,“ segir hann.

Fylgstu með Viktori á Instagram.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Glímir við heilaæxli á meðan sonurinn jafnar sig eftir erfiða aðgerð og eiginmaðurinn heyir kosningabaráttu – „Njótið lífsins og verið þakklát fyrir það sem að þið eigið“

Glímir við heilaæxli á meðan sonurinn jafnar sig eftir erfiða aðgerð og eiginmaðurinn heyir kosningabaráttu – „Njótið lífsins og verið þakklát fyrir það sem að þið eigið“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Baltasar Kormákur tryggir sér annað stórverkefni með Charlize Theron

Baltasar Kormákur tryggir sér annað stórverkefni með Charlize Theron
Fókus
Fyrir 5 dögum

Prjónaðu besta vin Línu langsokks

Prjónaðu besta vin Línu langsokks
Fókus
Fyrir 5 dögum

Dóra stígur fram: „Ég hefði ekki getað gert neitt til að koma í veg fyrir það sem gerðist“

Dóra stígur fram: „Ég hefði ekki getað gert neitt til að koma í veg fyrir það sem gerðist“
Fókus
Fyrir 6 dögum

„Það fylgir þessu mikil skömm og ég faldi þetta fyrir konunni minni“

„Það fylgir þessu mikil skömm og ég faldi þetta fyrir konunni minni“
Fókus
Fyrir 1 viku

Mótmælendur segjast hafa falið flöskur með gervipissi á Met Gala

Mótmælendur segjast hafa falið flöskur með gervipissi á Met Gala