fbpx
Föstudagur 12.júní 2026
433Sport

Liverpool frumsýnir minnisvarða fyrir Diogo Jota og bróður hans

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 12. maí 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Liverpool hefur opinberað fyrstu myndirnar af nýjum minnisvarða á Anfield sem reistur verður til heiðurs Diogo Jota og bróður hans André Silva sem létust á hörmulegan hátt í júlí á síðasta ári.

Minnisvarðinn ber nafnið „Forever 20“ og er ætlað að minnast lífs bræðranna, tengsla þeirra og þeirrar miklu virðingar sem stuðningsmenn, liðsfélagar og fjölskylda bera fyrir þeim. Í miðju verksins er hjartalaga skúlptúr sem vísar í hið fræga markafagn Jota. Frá ákveðnum sjónarhornum má einnig sjá tölurnar 20 og 30 sem bræðurnir báru á treyjum sínum.

Þá verða einnig letraðir inn textar úr söng sem stuðningsmenn Liverpool sungu reglulega fyrir Jota og heyrist enn á 20. mínútu leikja félagsins.

Minnisvarðinn verður staðsettur við 97 Avenue fyrir utan Anfield þar sem þúsundir stuðningsmanna skildu eftir blóm, trefla, bréf og önnur virðingarmerki eftir andlát þeirra. Hluti þeirra muna verður endurnýttur í sjálfan minnisvarðann svo stuðningsmenn verði áfram hluti af honum.

Liverpool segir að minnisvarðinn eigi að standa sem tákn um ást, samstöðu og minningu um tvo menn sem skildu eftir djúp spor hjá félaginu og stuðningsmönnum þess um allan heim.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Keane og Wright agndofa yfir vinnuaðstöðu sinni í Bandaríkjunum – „Þetta er magnað“

Keane og Wright agndofa yfir vinnuaðstöðu sinni í Bandaríkjunum – „Þetta er magnað“
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Klopp mjög óhress með gærkvöldið

Klopp mjög óhress með gærkvöldið
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Saumað að honum í beinni: Var rekinn fyrir dónaleg skilaboð til samstarfskvenna – „Ég hef tekið út refsingu mína“

Saumað að honum í beinni: Var rekinn fyrir dónaleg skilaboð til samstarfskvenna – „Ég hef tekið út refsingu mína“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Trippier sagður brjálaður – Skrifaði undir í vikunni en skoðar að rifta samningi

Trippier sagður brjálaður – Skrifaði undir í vikunni en skoðar að rifta samningi
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

PSG stórhuga og vilja einn besta leikmann Bayern

PSG stórhuga og vilja einn besta leikmann Bayern
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Arsenal aftur farið að skoða spænska landsliðsmanninn

Arsenal aftur farið að skoða spænska landsliðsmanninn