Fyrr í vikunni var greint frá sviplegu andláti bandarísku OnlyFans-stjörnunnar Christina Ashten Gourkani lést af völdum hjartaáfalls eftir fegrunaraðgerð, aðeins 34 ára gömul.
Hjúkrunarfræðingurinn og áhrifavaldurinn Viktor Andersen hefur alla tíð verið ófeiminn að ræða opinskátt um þær fegrunaraðgerðir sem hann hefur undirgengst. Hann hefur meðal annars látið fylla í varir sínar og kinnar sem og látið sprauta bótox í enni sitt og undir augun.
„Ótrúlega fyndið að þú skyldir hafa samband á þessum tímapunkti því ég var á leiðinni í aðgerð núna í maí sem ég er búinn að fresta því ég er svo kvíðinn fyrir henni,“ segir Viktor.
„Reyndar er þetta endurbyggjandi aðgerð (e. reconstructive surgery), ekki fegrunaraðgerð að þessu sinni og ætla að bíða með hana þar til eftir sumarið. En annars er ég alltaf spenntur fyrir þessu. Ég er með plan í gangi varðandi næstu skref og ég get ekki beðið,“ segir Viktor, sem ætlar að halda planinu leyndu um sinn.
View this post on Instagram
„Ég sem hjúkrunarfræðingur geri mér auðvitað grein fyrir þeirri áhættu sem þessu fylgir slíkum aðgerðum en maður verður líka að reyna sjálfur að minnka hana sem mest með því að undirbúa sig vel áður en maður leggst undir hnífinn,“ segir Viktor.
„Maður verður að fara í mikla rannsóknarleit áður en maður velur lækninn og aðgerðina. Ég er núna undanfarið búinn að skipta út þremur lýtalæknum því við höfum ekki verið sammála um aðgerðirnar. En ég vona auðvitað að ég muni ekki reka nagla í eigin líkkistu.“
Svo eru sumar aðgerðir áhættusamari en aðrar. „Eins og til dæmis brazilian butt lift. Ég mun líklegast aldrei fara í þannig aðgerð, dánartíðnin er hæst þar af öllum fegrunaraðgerðum og finnst mér það ekki áhættunnar virði,“ segir hann.
Næsta aðgerð á dagskrá hjá Viktori er endurbyggjandi aðgerð á vörum.
„Þetta er engin meiriháttar aðgerð en snýr samt að mikilvægasta hluta andlitsins. Ég er að fara að láta móta þær upp á nýtt og það verður gerður skurður til að taka út varanleg fyllingarefnin og svo þarf ég að láta fylla í þær upp á nýtt. Það er að segja ef ég hef mig í þetta loksins,“ segir hann.
View this post on Instagram
Aðspurður hvernig sé best að undirbúa sig fyrir fegrunaraðgerð gefur Viktor nokkur ráð.
„Maður undirbýr sig vel með því að kynna sér lækninn vel, athugasemdir um hann á samfélagsmiðlum og annars staðar á netinu, hver reynslan hans er, hvaða aðgerðir þessi læknir hefur sérhæft sig í, hvernig aestík gerir hann og hentar það þér. Svo þarf maður að undirbúa sjálfan sig vel fram í tímann með því að stunda reglulega hreyfingu, borða fjölbreytta og holla fæðu svo líkaminn getur endurbyggt sig með réttum hætti eftir aðgerðirnar svo hann jafni sig rétt, fara í blóðprufur til að skoða hvort allt sé ekki eins og á að vera. Maður þarf því að hugsa vel um sig svo aðgerðirnar heppnast sem best og minnkar hættuna á fylgikvillum,“ segir hann og bætir við:
„Að leita að lýtalækni sem hentar sjálfum sér er eins og að leita að nál í heystakki. Það hefur tekið mig nokkrar tilraunir og mörg ár að ákveða loksins hvaða lækni ég ætla að leita til með einhverjar ákveðnar aðgerðir.“