fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
Fókus

Tvífari Kim Kardashian lést eftir fegrunaraðgerð

Fókus
Miðvikudaginn 26. apríl 2023 10:49

Christina Ashten.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Christina Ashten Gourkani lést af völdum hjartaáfalls aðeins 34 ára gömul, nokkrum klukkustundum eftir að hafa gengist undir fegrunaraðgerð.

Christina var bandarísk fyrirsæta og OnlyFans-stjarna og var einnig þekkt sem tvífari Kim Kardashian.

Fjölskylda hennar er í sárum og hefur stofnað GoFundMe síðu fyrir jarðarför hennar, sem verður í næstu viku.

Fjölskyldan lýsir mikilli sálarangist og áfalli við sviplegt andlát Christinu.

„Það var snemma morguns þann 20. apríl sem fjölskylda okkar fékk hörmulegt símtal frá öskrandi og örvæntingafullum fjölskyldumeðlim: „Ashten er að deyja, Ashten er að deyja!“ Veröld okkar hrundi eftir símtalið og mun það ásækja okkur alla ævi,“ kemur fram í yfirlýsingu fjölskyldunnar. Það má lesa hana í heild sinni hér.

Mary Magdalene. Mynd/Instagram

OnlyFans-stjarnan Mary Magdalene minnist Christinu á Instagram. Magdalene hefur gengist undir fjölda fegrunaraðgerða og lét næstum lífið eftir fegrunaraðgerð á kynfærum.

„Mér finnst svo sorglegt að hún dó í kjölfar fegrunaraðgerðar. Þetta er svo ógnvekjandi því þú veist bara aldrei hvort þú munir deyja eftir áhættusama aðgerð,“ sagði hún og bætti við að hún væri hrædd um að hljóta heilaskaða í hvert skipti sem hún fer í aðgerð.

Skjáskot/Instagram
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég vildi ekki verða bara stelpan sem missti pabba sinn“

„Ég vildi ekki verða bara stelpan sem missti pabba sinn“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Lýsir „mjög skrýtnum“ hópkynlífskvöldum með Hugh Hefner í Playboy-höllinni

Lýsir „mjög skrýtnum“ hópkynlífskvöldum með Hugh Hefner í Playboy-höllinni
Fókus
Fyrir 6 dögum

Segir að kærastinn sinn sé enginn hommi þó hann sé sífellt að sofa hjá öðrum karlmönnum

Segir að kærastinn sinn sé enginn hommi þó hann sé sífellt að sofa hjá öðrum karlmönnum
Fókus
Fyrir 6 dögum

Leikstjórinn sakaður um að hafa notað andlit ungrar leikkonu í leyfisleysi – Er þetta sama manneskjan?

Leikstjórinn sakaður um að hafa notað andlit ungrar leikkonu í leyfisleysi – Er þetta sama manneskjan?
Fókus
Fyrir 6 dögum

Ella setti kennarastarfið á hilluna – Þénar allt að 12 milljónir árlega í óvenjulegu starfi

Ella setti kennarastarfið á hilluna – Þénar allt að 12 milljónir árlega í óvenjulegu starfi
Fókus
Fyrir 1 viku

Þessu lauk loks á endanum með þeim – Lögmaður Baldoni telur að um fullnaðarsigur sé að ræða

Þessu lauk loks á endanum með þeim – Lögmaður Baldoni telur að um fullnaðarsigur sé að ræða