fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fókus

Þjóðþekkt fólk flykkist á bak við Eddu – „Hinir hræddu hata“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Miðvikudaginn 12. apríl 2023 09:51

Felix Bergsson, Þórhildur Gyða og Sigmundur Erni eru meðal þeirra sem hafa sýnt Eddu Falak stuðning.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Baráttukonan og hlaðvarpsstjórnandinn Edda Falak rauf þögnina í gær varðandi missagnir um starfsferill hennar í fjármálageiranum í Danmörku. Hún sagði að hún hafi einfaldað frásögnina til að hlífa sjálfri sér og þeim sem sýndu henni vanvirðingu.

Sjá einnig: Segist hafa einfaldað frásögnina til að „hlífa sjálfri mér og þeim sem sýndu mér vanvirðingu“

„Það sem ég veit fyrir víst er hvaða viðhorfum ég mætti þarna úti, sem og hér heima. Ég og allar hinar. Ég mun halda áfram að segja okkar sögur. Alveg sama hvaða gröftur vellur upp. Því kvenfyrirlitning og kerfisbundið ofbeldi gegn konum á ekki að viðgangast í heilbrigðu samfélagi.

Staðreyndin er sú að ég hef skrifað þennan pistil áður. Ég skrifaði hann árið 2021, ég skrifaði hann árið 2022 og nú skrifa ég hann aftur árið 2023. Síðastliðin tvö ár hef ég þurft að þola linnulaust áreiti og árásir fyrir það eitt að veita þolendum ofbeldis vettvang til að segja sína sögu. Ég þarf stöðugt að þola neikvæða umræðu um mig sem persónu á opinberum vettvangi. Ég hef verið uppnefnd og gerð að skessu af heilu bæjarfélagi, dregin fyrir dóm vegna starfa minna, mér hafa borist hótanir um ofbeldi og ókunnugir hafa bankað upp á heima hjá mér,“ sagði Edda í færslu á Facebook.

Pistilinn má lesa í heild sinni hér.

Sjá einnig: Edda Falak rýfur þögnina – Nauðsynlegt að staldra við eftir „linnulaust áreiti og árásir“

Yfir 800 manns hafa líkað við færsluna þegar fréttin er skrifuð og rúmlega 130 manns skrifað athugasemd við hana. Yfirgnæfandi meirihluti – eða nær allar – athugasemdanna eru jákvæðar og skrifaðar í stuðningi við baráttukonuna.

„Takk kæra Edda. Gangi þér vel!“ skrifar Felix Bergsson leikari.

„Virkilega vel að orði komist. Við eigum ekki að sætta okkur við, að það að þola samfélagslegt ofbeldi, ófrægingu og kvenhatur sé hluti af starfi þeirra sem lyfta röddum þolenda ofbeldis eða standa í stafni feminískrar baráttu. Ég er líka stolt af því sem þú hefur gert, en fyrst og fremst þakklát,“ sagði Sigrún Sif Eyfeld, talskona Líf án ofbeldis og situr í stjórn samtakanna.

„Takk fyrir þig,“ skrifaði Þórhildur Gyða Arnarsdóttir, stjórnarmeðlimur baráttuhópsins Öfga.

„Þú ert best. Þeir sem sjá það sjá það, hinir hræddu hata. KVK – kærleikur, virðing, kurteisi. Tilhæfulaus stormur á tímum takkafrétta. Mikil blessun elsku Edda að deila með þér tilverunni. Luv ya,“ sagði Arnar Dan Kristjánsson leikari.

„Takk fyrir hugrekkið kæra Edda og að gefa þolendum rödd. Þú ert mögnuð kona! Gangi þér vel og takk fyrir að gefast ekki upp þrátt fyrir ósanngjarnt og yfirgengilegt mótlæti,“ skrifaði Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé, annar stofnandi Empower.

„Takk Edda fyrir þína baráttu og þitt hugrekki. Þú ert ekki ein,“ sagði Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.

„Kærkeikskveðja, þakkir og farsældaróskir,“ sagði fjölmiðlamaðurinn og rithöfundurinn Sigmundur Ernir Rúnarsson.

Þetta er aðeins brot af þeim kveðjum sem hafa verið ritaðar til stuðnings Eddu. Færsluna má skoða hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Hver bjargar jólunum í Borgarleikhúsinu?

Hver bjargar jólunum í Borgarleikhúsinu?
Fókus
Fyrir 4 dögum

Hafdís Björg opnar sig upp á gátt: „Ég var hræddari við kommentakerfið en ofbeldismanneskjuna“

Hafdís Björg opnar sig upp á gátt: „Ég var hræddari við kommentakerfið en ofbeldismanneskjuna“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Ég er ekki að fara að taka yfir heiminn – ég er hér til að hjálpa“

„Ég er ekki að fara að taka yfir heiminn – ég er hér til að hjálpa“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Laufey sýnir á sér nýja hlið – „Lyktar eins og heima“

Laufey sýnir á sér nýja hlið – „Lyktar eins og heima“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Kyntákn tíunda áratugarins hraðspólar kynlífssenur nútímans – Þetta er ástæðan

Kyntákn tíunda áratugarins hraðspólar kynlífssenur nútímans – Þetta er ástæðan
Fókus
Fyrir 6 dögum

Barnastjarnan úr Little Miss Sunshine orðin þrítug – lífið eftir frægðina var erfitt

Barnastjarnan úr Little Miss Sunshine orðin þrítug – lífið eftir frægðina var erfitt
Fókus
Fyrir 6 dögum

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“
Fókus
Fyrir 1 viku

Þetta eru lögin sem kemur fólki á óvart að séu íslensk

Þetta eru lögin sem kemur fólki á óvart að séu íslensk
Fókus
Fyrir 1 viku

Patrekur ákvað að hætta að drekka þegar hann sá sjálfan sig: „Ég gat ekki horft á þetta. Mér fannst þetta svo hrikalegt“

Patrekur ákvað að hætta að drekka þegar hann sá sjálfan sig: „Ég gat ekki horft á þetta. Mér fannst þetta svo hrikalegt“