fbpx
Miðvikudagur 22.apríl 2026
Fókus

Camilla Rut er með mikilvæg skilaboð fyrir jólin – „Ég fæ bara kvíðakast við að heyra þetta“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Föstudaginn 23. desember 2022 09:13

Camilla Rut. Skjáskot/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áhrifavaldurinn og athafnakonan Camilla Rut Rúnarsdóttir er með mikilvæg skilaboð til foreldra fyrir jólin.

Hún hvetur fólk til að hugsa um það sem skiptir virkilega máli; gæðastundir með fjölskyldunni en ekki hvort bakaraofninn sé hreinn eða hvort það sé búið að ganga frá öllum þvotti.

Camilla er tveggja barna móðir og þekkir jólastressið vel. Hún ræddi við fylgjendur sína á Instagram í gærkvöldi og beindi sérstaklega orðum sínum til foreldra.

„Smá hugleiðingar til foreldra, oftast eru það mömmur, sem eru á smá yfirsnúning svona korter í jól. Jólin koma þó að allt sé ekki eftir okkar höfði og upp á tíu. Jólin koma þó að þvottahrúgan sé ekki brotin saman og að allt sé tipp topp inn í öllum skápum. Jólin koma þó að bakaraofninn sé ekki nýþrifinn. Jólin koma svo sannarlega þó við bökum ekki eina smákökusort í viðbót eða sleppum því yfirhöfuð,“  sagði hún og bætti við að hún ætti sjálf erfitt með að taka þetta til sín.

„Ég reyndar viðurkenni að týpan sem ég er, þá virkar það ekki fyrir mig að heyra: „Jólin koma samt.“ Ég fæ bara kvíðakast við að heyra þetta,“ sagði hún kímin.

Camilla ræddi við fylgjendur sína í gær. Skjáskot/Instagram

„Ég skil það og sé það, að manni langar bara að gera vel, manni langar að hugsa fyrir öllu. Og vera svolítið þungamiðjan í því að allir fái sitt og að öllum líði vel yfir jólin. Ég í raun og veru skil það bara manna best. En stundum þegar maður er kominn á smá yfirsnúning er gott að stoppa sig af og hugsa aðeins, eða öllu heldur forgangsraða kannski.“

Camilla sagði að þá reyni hún að sýna æðruleysi. „Eins og ég segi, það er ekkert að því að gera sitt besta og leggja sig fram að allir fái sitt og öllum líði vel, en maður verður að hugsa um sig sjálfan líka,“ sagði hún.

 

View this post on Instagram

 

A post shared by CAMY (@camillarut)

Hvað vilja börnin?

Athafnakonan hvetur foreldra til að hugsa: „Hvað vilja börnin mín um jólin?“

„Ég hugsa það út frá því, hvað vildi ég sem barn. Þau vilja mig, þau vilja gæðastundir með mér. Þau vilja ekki stressið mitt, þeim er drull um ofninn, þvottafjallið og svo framvegis,“ segir hún.

„Ég man bara eftir því sjálf sem barn að það eina sem ég vildi var að einhver myndi stíga út úr eldhúsinu, setjast hjá mér, spjalla við mig, spila við mig og bara vera með mér. Og ef maður hugsar út í það þá er þetta ennþá það eina sem ég vil, gæðatími með fólkinu mínu. Þannig að til þín, sem ert að reyna þitt besta og ert kannski komin á smá yfirsnúning, þetta er allt í lagi. Það eina sem við þurfum, og viljum, er fólkið okkar. Hitt skiptir engu máli.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Auglýsir fötin af sér í heimsóknum til krabbameinsgreindra barna og eftirlifenda hatursárásar á Bondi Beach – „Drottningin hlýtur að vera að velta sér í gröfinni“

Auglýsir fötin af sér í heimsóknum til krabbameinsgreindra barna og eftirlifenda hatursárásar á Bondi Beach – „Drottningin hlýtur að vera að velta sér í gröfinni“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Mágkona skvetti svartri málningu yfir brúðina og hljóp svo í burtu

Mágkona skvetti svartri málningu yfir brúðina og hljóp svo í burtu
Fókus
Fyrir 6 dögum

Þessar bækur eru tilnefndar til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar

Þessar bækur eru tilnefndar til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar
Fókus
Fyrir 6 dögum

Undirbúa sýningu um ævi og feril Björgvins – Stjarna okkar Hafnfirðinga

Undirbúa sýningu um ævi og feril Björgvins – Stjarna okkar Hafnfirðinga
Fókus
Fyrir 6 dögum

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“
Fókus
Fyrir 6 dögum

„Einhver lest sem við settum í gang og fór algjörlega út af sporinu“

„Einhver lest sem við settum í gang og fór algjörlega út af sporinu“
Fókus
Fyrir 1 viku

Rúrik hefur látið 5,5 milljóna verðlaunafé renna til SOS – Framburður á firði og Vatnajökli skiluðu sigri í síðustu keppni

Rúrik hefur látið 5,5 milljóna verðlaunafé renna til SOS – Framburður á firði og Vatnajökli skiluðu sigri í síðustu keppni
Fókus
Fyrir 1 viku

Leikkona sakar Katy Perry um kynferðisbrot – „Nuddaði viðbjóðslegu píkunni sinni á andlitið á mér“

Leikkona sakar Katy Perry um kynferðisbrot – „Nuddaði viðbjóðslegu píkunni sinni á andlitið á mér“