fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Ellisif bjó við hrottalegt ofbeldi – „Ég lá meðvitundarlaus á gólfinu, með far eftir mótorhjólahæl á kinninni og nánast allar tennurnar brotnar“

Guðrún Gyða Eyþórs Árnadóttir
Sunnudaginn 18. desember 2022 22:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ellisif er í dag fertug kona og fimm barna móðir sem á miklu stærra og betra líf en hana hefði nokkurn tíma geta látið sig dreyma um. Hún er nýjasti viðmælandi hlaðvarpsins Sterk saman.

Hún ólst upp við góðar aðstæður þar sem ekkert skorti, hvorki tilfinningalegt né veraldlegt. Aftur á móti passaði Ellisif ekki inn í kassann sem skólakerfið vill setja alla inn í, hún var ung greind með ADHD og seinna kom í ljós að hún væri á einhverfurófi, sem útskýrir vanda hennar með félagsleg samskipti til að mynda.

Mér fannst ég hvergi passa inn, alveg sama hvar ég var en ég þráði að tilheyra, segir hún og bætir við að hún hafi verið furðulegur krakki.

Erfið unglingsár

Unglingsárin voru erfið en þá fann  Ellisif sig í hópi ungmenna sem farnir voru að fikta við neyslu vímuefna. 

Ellisif segir: Það var í raun bara gjöf fyrir mig að byrja að drekka, allar hömlur fóru og ég drakk mjög illa. Ég var samt alin upp við það að passa mig á áfengi því það væri mikill alkahólismi í minni fjölskyldu.

Hún var 12 ára farin að stelast í áfengi en 14 ára farin að stelast niður í bæ að djamma og lenda í vandræðum.

16 ára gömul fór Ellisif á sjó með pabba sínum og hafði gaman af því.

Ung eignast hún tvíbura tíu vikum fyrir tímann og voru þeir mikið veikir.

Ég er týpa sem ýti frá mér vanlíðan og klára verkefni sem þarf að klára. Ég og við vorum auðvitað mjög hrædd þegar þeir voru litlir og ég varð fljótt aftur ólétt. Þegar dóttir mín var níu mánuða fór ég í hjáveituaðgerð, orðin 150 kíló, ekkert búið að vinna í fíkninni og ég gat ekki borðað.

Á einu og hálfu ári var allt komið í vaskinn, drakk á kvöldin, skilin og komin í meðferð.

Inn og út úr meðferðum

Ellisif var inn og út úr meðferðum, í einni þeirra kynntist hún manni og stuttu síðar verður hún ólétt. Ég fatta að ég er ólétt þegar ég var komin 12 vikur og kona á kvennadeildinni kom mér inn á Vog, það voru allir voða góðir við mig á þessari meðgöngu. Barnsfaðir minn aftur á móti fór að beita mig líkamlegu ofbeldi eftir að sonur okkar fæddist. Hann barði mig í stöppu þar sem voru blóðslettur í loftinu.

Ellisif talar um spennuhring, eins og hún kallar það, þegar ofbeldismaður stjórnar heimilislífinu og öllu með sveiflum, ofbeldi og svo góðu tímabili þar sem hann gefur gjafir og sýnir þolinmæði.

Hún eignast annað barn með þessum manni og stuttu síðar féll hún. 

Ég féll, sat ein fyrir framan sjónvarpið og drakk, morguninn eftir hringdi ég í foreldra mína og lét sækja börnin mín og fór á fyllerí. Maðurinn minn var í mótorhjólasamtökum þar sem var mikið um drykkju, dóp, vopn, ofbeldi og allt.

Ég ætlaði bara á túr, fara svo í meðferð og verða aftur mamma en það gekk ekkert,

Ofbeldið varð verra og verra en alltaf svaraði hún fyrir sig, hún talar um hvernig samviskubitið nagar hana ennþá.

Nánast allar tennur brotnar

Eitt skiptið kom löggan heim og ég lá meðvitundarlaus á gólfinu og var með far eftir mótorhjólahæl á kinninni, það voru nánast allar tennurnar mínar brotnar og ég man ekki eftir að hafa pælt í þessu. Það var ekki fyrr en hann henti mér fram af annarri hæð og ég hljóp á nærbuxunum til nágrannans þar sem búið var að berja mig í klessu og rífa upp hársvörðinn með brotin rifbein.

Þessi hrottalega árás og tilraun til manndráps var kærð en felld niður.

Ellisif kláraði meðferð á Krýsuvík og var edrú í eitt og hálft ár en féll eftir það og ákvað að láta barnavernd vita af því og vildi ekki að börnin hennar myndu horfa upp á hana í því ástandi. Vegna ölvunarakstra þurfti hún að sitja inni og gerði hún það.

Ég sat í rúminu í fangelsinu og prjónaði 13 peysur.

Um leið og hún losnaði hélt hún áfram að nota, hún flutti til vinkonu sinnar og byrjaði að sprauta sig.

Vinkona mín bauð mér að sprauta mig og mér fannst þetta lógískt næsta skref í raun.

Get engum um kennt

Ellisif talar um þróunina sem hefur átt sér stað í þessum heimi. Fyrir einhverjum árum var það endastöð að nota vímuefni í æð en núna eru krakkar að byrja á því, sem er svo sorgleg staðreynd og hættuleg þróun.

Mörgum meðferðum, edrútímum og áföllum síðar verður tímabil sem Ellisif horfir á sem sitt erfiðasta, hún gat ekki lengur notað en gat ekki verið edrú. Ofbeldið sem hún bjó við var hrottalegt. 

Hún þurfti að vera með plan til að stoppa allar fíknihugsanirnar. Ég fékk endalaust af glansmyndum, ofbeldismyndum, allskonar myndir upp í hugann og þurfti meðvitað að stöðva þær.

Ég vil meina að ég hafi bara fæðst beygluð, ég get ekki kennt neinum um fíknina mína.

 

Það má hlusta á viðtalið við Ellisif í heild sinni í hlaðvarpinu Sterk saman.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður
Fókus
Í gær

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta