fbpx
Laugardagur 09.maí 2026
Fókus

Sunneva Einars birtir bikinímynd frá Kúbu – Nýtur OZ-veislunnar í botn

Fókus
Fimmtudaginn 17. febrúar 2022 09:01

Skjáskot/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áhrifavaldurinn og raunveruleikastjarnan Sunneva Einarsdóttir er stödd á Kúbu og virðist vera að njóta í botn ef marka má nýjustu Instagram-færslu hennar.

Stór hópur Íslendinga flaug til Kúbu í fyrradag vegna afmælis Guðjóns Más Guðjónssonar, eiganda og framkvæmdastjóra tæknifyrirtækisins OZ. Hann fagnaði fimmtugsafmæli í gær og í tilefni stórafmælisins leigði hann flugvél hjá Icelandair og flaug til Kúbu ásamt góðum vinum. Vísir greindi frá.

Samkvæmt fréttastofu Vísis er ekki aðeins um að ræða fjölskyldu og vini Guðjóns heldur einnig vini vina hans, gestir gátu keypt pakka þar sem flug, gisting á hóteli og allt skemmtanahald er innifalið.

Skjáskot/Instagram
Skjáskot/Instagram

Sunneva hefur verið dugleg að leyfa fylgjendum að fylgjast með Kúbu ferðinni í Story á Instagram.

Hún er einn vinsælasti íslenski áhrifavaldurinn, með 48 þúsund fylgjendur, og kemur fram í raunveruleikaþáttunum #Samstarf á Stöð 2.

Patrekur Jaime, Jóhanna Helga og Sunneva Einarsdóttir. Mynd/Instagram

Hún er ekki eina sjónvarpsstjarnan í hópnum, heldur er vinkona hennar Jóhanna Helga Jensdóttir einnig að sóla sig á Kúbu ásamt Patrek Jaime og Binna Glee, sem hafa slegið í gegn í þáttunum Æði á Stöð 2+.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Dánarorsök Buffy-leikarans opinberuð

Dánarorsök Buffy-leikarans opinberuð
Fókus
Fyrir 2 dögum

Raunveruleikastjarnan tekur erfiða ákvörðun um framtíðina eftir margar misheppnaðar tilraunir

Raunveruleikastjarnan tekur erfiða ákvörðun um framtíðina eftir margar misheppnaðar tilraunir
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Áhyggjufullur og með uppköst í viku“ fyrir viðtal hjónanna við Oprah

„Áhyggjufullur og með uppköst í viku“ fyrir viðtal hjónanna við Oprah
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Það fylgir þessu mikil skömm og ég faldi þetta fyrir konunni minni“

„Það fylgir þessu mikil skömm og ég faldi þetta fyrir konunni minni“