fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fókus

Ásgeir Kolbeins opnar sig um rifrildið og lýsir því sem martröð – „Ég vil ekki tala of mikið um þetta“

Máni Snær Þorláksson
Mánudaginn 5. apríl 2021 19:00

Skjáskot/YouTube

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ásgeir Kolbeinsson, fjölmiðla- og viðskiptamaður er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggvasonar. Ásgeir var um árabil einn þekktasti útvarpsmaður landsins en hann ákvað síðan að snúa sér að viðskiptum og varð hann eigandi vinsælla veitinga- og skemmtistaða í miðbænum.

Í þættinum talar Ásgeir til að mynda um eitt af sínum stærstu verkefnum á undanförnum árum en það var þegar eigendaskipti urðu á skemmtistaðnum Austur. Ásgeir segir skiptin hafa endað í illu en hann lýsir ferlinu sem martröð í þættinum. „Það er rosalegasta verkefni lífs míns. Ég vil ekki tala of mikið um þetta, en það er magnað hvað það er hægt að ,,manipulata” íslenska ríkið, dómskerfið og hvað sem er, bara ef þú ert nógu mikill hryðjuverkamaður. Þeir aðilar sem ég var að berjast gegn þar náðu ótrúlegum árangri með klækjum og að fara á bak við kerfið. Og kerfið stóð bara ekki í fæturnar þegar kom að því að leysa þetta mál,“ segir Ásgeir í þættinum.

„Hluti af þessu máli er enn í kerfinu og þetta mál allt saman var með hreinustu ólíkindum. Ég gleymi því aldrei þegar ég stóð á þriðju hæðinni á Austur og lögfræðingurinn minn var á leiðinni og deiluaðilinn var að koma og það var framundan einhver viðbjóður í 2-3 klukkutíma. Þetta var föstudagur í júní og klukkan var um 5 og sól úti og ég horfði út um gluggann og sá þar mann á reiðhjóli leggja fyrir utan vínbúðina og fara inn og koma með vínflösku út. Ég man að ég hugsaði hvað þessi hefði það gott að vera að fara að eiga gott kvöld á meðan ég var á leiðinni í eitthvað djöfulsins maraþon rifrildi. Þetta var lýsandi fyrir þessi ár sem tóku við og þessa martröð alla.“

„Ég fór á sínum tíma í vatns-ævintýri“

Ásgeir talar þá um það að hann hafi alltaf verið hugmyndaríkur, það hafi því ekki komið á óvart að hann sé á þeim stað sem hann er í dag. „Ég hef stundum verið á undan minni samtíð með hugmyndir og hef alltaf verið ófeiminn við að gefa hugmyndir. Það er nóg fyrir alla,“ segir hann og rifjar upp eina hugmynd sem hann fékk sem barn.

„Ég man til dæmis þegar ég var barn í bílnum hjá mömmu og pabba og við komum að ljósum og ég sagði við þau: „Af hverju eru ekki myndavélar á umferðarljósunum, þannig að ef það er enginn að koma úr hinni áttinni, þá getum farið yfir ef það eru engir aðrir bílar.“ Það eru 35 ár síðan, en hreyfiskynjararnir á ljósin komu ekki fyrr en 15 árum seinna.“

Hann talar svo um aðra hugmynd sem hann fékk en það var að selja íslenskt vatn til útlanda. „Ég fór á sínum tíma í vatns-ævintýri og ætlaði að flytja út íslenskt vatn. Við stofnuðum fyrirtæki á Akureyri sem hét „Akva“ og það var meðal annars búið að ná samningum við bæði DSB lestirnar í Danmörku og Nettó verslanirnar í sama landi. En þó að maður þurfi ekki nema brotabrot af sölu vatns í heiminum til að græða mikinn pening, komst ég fljótt að því að þetta væri erfiður bisness. Við komumst að því að eina leiðin til að selja íslenskt vatn er að vera með það sem lúxus-vöru. En þetta var frábær reynsla og maður lærði margt.“

„Maður lærir með aldrinum og tímanum“

Það hefur oft komið fyrir að Ásgeir lendi milli tannana á fólki, hann hefur lært með tímanum að taka því af æðruleysi. „Mér finnst auðvitað leiðinlegt þegar fólk misskilur hlutina eða heldur eitthvað slæmt um mig, en þú ert alltaf með einhvern einn fíl einhvers staðar. Ég er mjög gjarn á að reyna að laga hluti og hafa alla góða, en ég lærði það einhvern tíma að það er ekki hægt,“ segir hann og heldur áfram.

„Það eru kannski hundrað manns í veislu og 99 finnst þú frábær, en það er einn sem finnst þú alveg ömurlegur og það sem maður gerir er að vaða í þennan eina og reyna að laga hann. Svo áttar maður sig á því að það er hvorki eitthvað sem maður á að gera, né eitthvað sem er hægt að breyta. En auðvitað þegar maður sér eitthvað skrifað eða sagt um sig sem er ekki rétt, þá fer réttlætiskenndin í gang. En maður lærir með aldrinum og tímanum og verður alltaf betri og betri í þessu.“

Í þættinum ræða Ásgeir og Sölvi um feril Ásgeirs, fjölmiðla, viðskipti, ástríðu í lífinu og margt fleira.

Þáttinn í heild sinni má sjá hér fyrir neðan:

https://www.youtube.com/watch?v=a_K82KhEM0E&t=2s

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður
Fókus
Í gær

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta