fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Fókus

Blaðamaður DV fórnar sér – Grænmeti í öll mál í 5 daga

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Sunnudaginn 28. febrúar 2021 15:30

Grænmeti er allra meina bót. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er talað um að fullorðnir ættu að borða að minnsta kosti tvo til þrjá bolla af grænmeti á hverjum degi en mörg okkar eigum það til að borða miklu minna. En nú er komið nóg, blaðamaður setti sér markmið, að borða grænmeti með öllum máltíðum í fimm daga.

Ég er hálfgerður grænmetisnýgræðingur. Það eru fá ár síðan ég borðaði ekki grænmeti. Áferðin, bragðið og bara allt við það truflaði mig. Ég var líka rosalega matvönd og borðaði aðallega brauð og ost. Með auknum þroska fór ég loks að borða fjölbreyttara og varð í kjölfarið grænkeri. En þrátt fyrir það sem margir halda, að grænkerar borði bara gras og gufusoðið spergilkál, þá er ég enn enginn sérstakur aðdáandi grænmetis. Mér hefur þó tekist að lauma alls konar grænmeti í fæðuna mína í gegnum árin.

Samt sem áður var ég ekki að borða nógu mikið grænmeti og setti mér markmið í byrjun mánaðarins, eins og ég geri alla mánuði, að borða meira grænmeti. Ég ákvað að taka þetta skrefinu lengra og skoraði á sjálfa mig að borða grænmeti með öllum máltíðum í fimm daga. Það þýðir að hvort sem ég var að borða morgunmat, millimál eða kvöldmat, þurfti eitthvað grænmeti að vera innifalið í máltíðinni.

Ég lærði ýmislegt á þessum fimm dögum, hér er það helsta.

Það sem ég borðaði

Morgunmatur

Þrátt fyrir tilraunastarfsemi mína var ég líka að hugsa um matarsóun og borðaði oft sömu máltíðirnar. Það sem ég fékk mér oftast í morgunmat var „smoothie“ skál eða acaí-skál með granóla, sem ég fæ mér nánast daglega. Í mína hefðbundnu skál bætti ég við frosnu blómkáli og spínati, eða frosnum kúrbít og spínati.

Ég elska „overnight oats“, hafragraut sem þú gerir kvöldið áður og geymir í ísskáp yfir nótt. Ég bætti gulrótum við minn og það var gómsætt, ótrúlegt en satt. Minnti mig á gulrótarköku.

Gulrótagrautur. Mynd/Getty

Gulrótargrautur

1 bolli haframjöl

½ bolli gulrætur – rifnar

1 bolli plöntumjólk (notaðu sojamjólk fyrir meira próteinmagn)

Kanill eftir smekk

Hlynsíróp eftir smekk

Valkvætt: Pekanhnetur, hempfræ, valhnetur, möndlusmjör.

Blandar öllu saman í ílát og setur inn í ísskáp yfir nótt. Sniðugt að nota krukku ef kippa á grautnum með sér.

Þetta er skammtur af stærri gerðinni, ef þú vilt minna mundu að hafa bara jafn mikið af vökva á móti höfrunum. Ég set stundum aðeins minni vökva og vil hafa grautinn extra þykkan.

Hádegismatur

Vegna faraldursins hef ég verið að vinna heima og þar með þægilegra að framkvæma tilraunina. Ef ég borðaði ekki afganga í hádegismat þá skellti ég í snöggan hádegisverð.

Á þriðjudeginum smakkaði ég nýja veganvöru sem heitir JUST Egg, sem er unnið úr plöntum en inniheldur svipað magn af próteini og hefðbundin egg, en algjörlega laust við kólesteról. Áferðin er líka ótrúlega svipuð eggjum og bragðið einnig. Ég gerði mér ommilettu með allskonar grænmeti og seinna í vikunni bjó ég mér til „eggja“-hræru með grænmeti.

Millimál

Þar sem það að grípa í ávexti, próteinstykki, brauð eða eitthvað álíka var út úr myndinni þurfti ég að vera hugmyndarík. Auðveldasta leiðin til að útbúa millimál var einfaldlega að fá mér þeyting. Það er hægt að setja nánast hvað sem er út í þeyting, frosið blómkál, frosinn kúrbít, spínat, grænkál og meira að segja spergilkál.

Fyrir einn grænan vænan þá seturðu spínat, frosinn kúrbít, sellerí, mangó, engifer og appelsínusafa saman í blandara. Það er hægt að bæta við muldum hörfræjum, hempfræjum eða próteindufti fyrir auka næringu.

Ég fékk mér líka gulrætur og hummus í millimál, samloku með vegan mæjónesi og papriku, tómat, káli og spínati.

Kvöldmatur

Kvöldmaturinn var fjölbreyttur. Núðluréttur með tófú og grænmeti var á matseðlinum ásamt súpu. Súpa er fullkomin leið til að bæta grænmeti í mataræðið. Ég var engin súpumanneskja fyrr en ég fór að gefa súpum alvöru tækifæri. Súpur með linsubaunum, eins og Mulligatowny-súpa Guðrúnar Sóleyjar, eru í sérstöku uppáhaldi þessa dagana, einstaklega saðsamar, hollar og trefjaríkar.

Það er einnig hægt að troða alls konar grænmeti í lasagna og pasta. Svo fékk ég mér pítsu eitt kvöldið – með grænmeti.

Mynd/Getty

Ráð

Skipulag nr. 1, 2 og 3

Áskorunin byrjaði á mánudegi þannig að deginum áður settist ég niður, skipulagði vikuna og hvað ég ætlaði að borða. Ekki skipuleggja aðeins hvað þú ætlar að borða í kvöldmat, heldur einnig allar hinar máltíðirnar og hafðu nokkra valmöguleika fyrir millimál.

Skolaðu og skerðu niður grænmeti

Byrjaðu strax á því að skola allt grænmeti og hafðu það sýnilegt í ísskápnum. Það er ótrúlegt hvað er hægt að bæta spínati í margt ef það er fljótlegt að grípa í það. Ég mæli líka með því að vera búin að skera niður grænmeti, eins og gulrætur, paprikur og gúrku. Þannig að þegar þig langar í eitthvað snarl geturðu gripið í grænmetið og hummus og japlað á því. Eða búið til samloku á núll einni.

Ekki vera hrædd/ur við að prófa eitthvað nýtt

Fyrir nokkrum árum hefði ég ælt við tilhugsunina um að setja blómkál í þeyting, kemur svo í ljós að það er lítið sem ekkert bragð af því, sérstaklega ef restin af þeytingnum er góð.

Smátt skorið grænmeti

Það hefur verið algjörlega lykillinn að auknu grænmetisáti mínu síðastliðin ár. Ég á það enn þá til að hrylla við áferð af grænmeti en eftir að ég fann grænmeti sem kemur smátt skorið í frystinum í Bónus þá er ekkert mál að bæta því við allskonar rétti.

Það sem ég lærði

Þetta var minna mál en ég hélt. Ég hefði þó ekki getað gert þetta ef ég hefði ekki verið skipulögð.

Það sem ég lærði allra helst var að það er ekkert mál að bæta grænmeti við mataræðið, þú þarft bara að gefa því tækifæri. Annað sem ég tók eftir var að mig fór að langa meira í grænmeti þegar leið á vikuna.

Ég er rosalegur sælkeri, ég til dæmis elska próteinpönnukökur með heslihnetusmjöri og banana eða hvað sem er eitthvað sætt á bragðið. En þar sem það var ekki á matseðlinum í vikunni og það var alltaf grænmeti með öllu, þá fór mig að langa meira í það.

Ég mæli með að allir skori á sig að borða grænmeti í öll mál, þó það sé ekki nema í einn dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Nýr veruleiki blasir við Láru eftir aflimanir – „Stundum getur útlitið orðið of svart, stundum er ekki hægt að snúa til baka“

Nýr veruleiki blasir við Láru eftir aflimanir – „Stundum getur útlitið orðið of svart, stundum er ekki hægt að snúa til baka“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hvað varð um leikkonuna úr Shining sem sneri baki við Hollywood? – „Ég var stjarna“

Hvað varð um leikkonuna úr Shining sem sneri baki við Hollywood? – „Ég var stjarna“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Emma Stone vill ekki lengur vera kölluð Emma

Emma Stone vill ekki lengur vera kölluð Emma
Fókus
Fyrir 3 dögum

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður
Fókus
Fyrir 3 dögum

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra
Fókus
Fyrir 4 dögum

Læknar hafa áhyggjur af áberandi aukaverkunum Ozempic – Augljóst meðal elítunnar í Hollywood

Læknar hafa áhyggjur af áberandi aukaverkunum Ozempic – Augljóst meðal elítunnar í Hollywood
Fókus
Fyrir 4 dögum

Forsetaframbjóðandinn sem gerðist miðill – Hannes lætur efasemdaraddirnar sem vind um eyru þjóta

Forsetaframbjóðandinn sem gerðist miðill – Hannes lætur efasemdaraddirnar sem vind um eyru þjóta