Leikaraparið Þuríður Blær Jóhannsdóttir og Guðmundur Felixsson birtu skemmtilegt myndband á Facebook í gær. Myndbandinu er ætlað að fræða ungt fólk um COVID en á sama tíma vera tilraun þeirra til að fá að semja lokalagið í Áramótaskaupinu 2020.
Þuríður og Guðmundur syngja nýjan texta við Lagið um það sem er bannað, sem verður að teljast nokkuð viðeigandi í sóttvarnarsamfélaginu sem við búum í um þessar mundir.
Í nýjum texta þeirra er farið yfir það sem er bannað í dag. Syngja þau meðal annars:
„Það má ekki djamma fram á nótt,
Og ekki horfa á KR vinna Þrótt.“
Síðan er fjallað um grímuskylduna og að fundir þurfi allir að fara fram í gegnum síma og svo kemur viðlagið:
„Þessi Þórólfur hann er svo skrítinn.
Hann er alltaf að skamma mann
Þó maður spritti hendurnar
Hann er alltaf að skamma mann“
Í næsta erindi er vikið að máli Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, ferðamála- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, sem fór á eftirminnilegt vinkonudjamm um síðustu helgi og hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir.
„Ef ég fer á smá vinkonudjamm
Þá segir þjóðin við mig „nei skamm!“
Í athugasemdum er parið hvatt til að fjölga erindum í laginu og greinilega margir sem styðja þá hugmynd að þetta verði lokalagið í Skaupinu. Nú verður fróðlegt að sjá hvort sú verði raunin.
„Þríeykið vill fá meiri Covidfræðslu til unga fólksins: Hérna er okkar framlag“