fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Tilvistarkreppa í öllum sínum myndum

Íris Hauksdóttir
Sunnudaginn 2. febrúar 2020 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Myndin Behind Closed Curtains eftir Hönnu Björgu Jónsdóttur bar sigur úr býtum sem besta stuttmyndin á kvikmyndahátíðinni Reykjavík Feminist Film Festival sem haldin var á dögunum. Hanna Björg segir verðlaunin gildishlaðin en fyrir hefur myndin sigrað í stuttmyndakeppni í Brasilíu og í Bandaríkjunum.

Hanna Björg lærði leikstjórn í Westerdals í Ósló og útskrifaðist þaðan árið 2017. Síðan hún flutti aftur heim til Íslands hefur hún að mestu starfað sem annar aðstoðarleikstjóri og segist þakklát fyrir að hafa fengið nóg af verkefnum. Hún kom meðal annars að gerð þáttanna Ófærð og Brot og kvikmyndarinnar Gullregns sem sýnd er um þessar mundir í bíósölum borgarinnar.

Hanna Björg segir að tilviljun hafi ráðið því hvernig hún hóf feril sinn í kvikmyndagerð. „Ég var í listfræði í Háskólanum, sem átti ekki alveg nógu vel við mig því ég er meira fyrir verklegar greinar. Áður hafði ég verið á myndlistarbraut í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti og í Ljósmyndaskólanum hjá Sissu. Ég sótti um að smyrja samlokur í sjónvarpsþáttaröðinni Ríkinu sem Saga Film framleiddi og fann strax að þetta var það sem ég hefði eiginlega alltaf verið að leita að. Síðan var ekki aftur snúið.“

Erfið en gefandi ár
Eftir að hafa starfað við framleiðslu á Íslandi í þrjú ár ákvað Hanna Björg að flytja til Noregs. Eftir þrjú ár þar í landi sótti hún um nám í kvikmyndaskóla í Ósló, Westerdals Oslo ACT, en þá taldi hún sig hafa náð bærilegum tökum á tungumálinu.

„Námið gekk ótrúlega vel þótt ég hafi í raun breytt um stefnu í náminu frá því sem upphaflega planið var. Kennararnir mínir hvöttu mig sérstaklega til að sækja um leikstjórn sem var umsetnasta deildin í skólanum. Ég varð eiginlega mjög hissa en glöð þegar ég komst inn. Þetta var ótrúlega skemmtilegt. Námið var allt á norsku og þar af leiðandi þurfti ég að skrifa handrit á norsku og BA-ritgerðina mína. Þetta voru mjög erfið þrjú ár en ótrúlega gefandi, kannski ekki síst vegna þess að ég fór í námið með son minn, sem þá var tveggja ára, og við vorum ekki með neitt tengslanet úti, þannig séð.“

Minna pláss til að vera öðruvísi
Stuttmyndin Behind Closed Curtains segir frá þremur karakterum sem allir kljást við tilvistarkreppu, hver á sinn hátt. Áhorfendur fylgjast svo með þeim vinna á ólíkan hátt úr sínum málum. Hanna Björg segir söguna í grunninn fjalla um það að skera sig úr fjöldanum og í beinu framhaldi snertir hún á málefnum samkynhneigðra og cross-dressing.

„Mig langaði að fjalla um eitthvað sem snerti mig og ég gæti sjálf fundið mig í. Þá á ég ekki við samkynhneigð eða cross-dressing heldur þá tilfinningu að finnast maður ekki vera hluti af heildinni og að maður skeri sig úr fjöldanum. Við Íslendingar erum komnir svo miklu lengra en Norðmenn í alls kyns réttindabaráttu og vitundarvakningu meðal almennings. Mér fannst að þar væri minna pláss til að vera öðruvísi en almenni bolurinn og fólk sem skar sig úr mætti öðruvísi viðmóti en aðrir, þótt það væri auðvitað á afskaplega kurteisan hátt eins og Norðmanna er von og vísa. Ekki það, að það er margt betra hjá þeim en okkur en þetta stakk mig aðeins, líklega því ég var annar tveggja útlendinga í skólanum, en þar var einnig sýrlensk kona, flóttamaður, og við tengdum einna best við hvor aðra.

Ég vann mjög mikla heimildavinnu á meðan ég vann að handritinu. Talaði við samtök sem hjálpa fólki í krísu vegna kynhneigðar, kynleiðréttingar og cross-dressing. Ég tók einkaviðtöl við mörg sem fóru enn leynt og sögðu mér hryllilega sögur af því sem þau höfðu lent í aðeins vegna þess hver þau voru og gátu ekki falið eða vildu ekki. Þetta var ekki aðeins fólk komið á um miðjan eða efri aldur heldur allt niður í átján ára unglinga. Árið 2017! Mér fannst mikilvægt að reyna að koma að hversu fjölþættar hliðar tilvistarkrísa getur haft – jafnvel þótt hún geti birst á fjölmargan hátt annan en í sambandi við kynhneigð. Og að hún geti reynst banvæn. Vegna mótstöðu og vanþekkingar annarra.“

Aukið sjálfstraust
Myndin vann sem fyrr segir til verðlauna í Brasilíu, á stuttmyndakeppninni Highlight of the Festival, og í Bandaríkjunum, á Best Short á 21 Island Festival í New York. Hún hefur jafnframt komist inn á hátíðir bæði í Noregi, Spáni, Barbados, Íslandi, Indlandi og Kína.

Hvaða merkingu hafa verðlaun sem þessi fyrir listamenn eins og þig?

„Gríðarlega mikil. Þetta er hvatning. Að finna að það sem maður er að gera hafi áhrif á aðra og eigi sér einhvern stað. Það er auðvelt að týna sér í sköpunarferli sem þessu þar sem maður fer allan hringinn og að því kemur að manni finnst maður vera alveg vonlaus með vandræðalega mikið drasl í höndunum. Þegar maður hlýtur svona verðlaun þá eykur það óneitanlega sjálfstraustið til að halda áfram. Núna er ég sem dæmi að vinna við mynd eftir Tinnu Hrafnsdóttur sem heitir Skjálfti og byggir á skálsögu Auðar Jónsdóttur, Stóra skjálfta. Þar er ég annar aðstoðarleikstjóri og vinn með stórkostlegu tökuliði, valin manneskja í hverju horni. Tinna er með magnaða sýn á söguna og svo skapandi að það er gjöfult að vinna með henni. Hún verður sterkur leikstjóri í framtíðinni. Samhliða því reyni ég að skrifa sjálf þegar færi gefst og næsti draumur er auðvitað að gera mynd í fullri lengd.

Kvikmyndagerð er nefnilega vaxandi atvinnugrein á Íslandi, við skulum ekki gleyma því, sem kemur með mikla peninga í ríkiskassann bæði innanlands og að utan. Við verðum að gæta þess að rækta þessa sköpun og alls ekki að kæfa hana. Það er hægt að gera með því að hækka frekar en lækka endurgreiðsluna í greinni eins og nú stendur til að gera. Þetta skilar sér svo margfalt út í atvinnulífið, húsnæðismarkaðinn, og alls konar iðnað og þjónustu. En ekki síst menningu. Við eigum orðið svakalegan fjölda hæfileikamikils fólks sem mun stuðla að því að gera okkur enn betri í þessari listsköpun og styrkja samfélagssýn. Þetta verður að rækta enn frekar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar
Fókus
Fyrir 3 dögum

Harmsaga systkinanna Rakelar og Heimis – „Ég man eftir mömmu á þessum tíma, annað hvort öskrandi eða sofandi“

Harmsaga systkinanna Rakelar og Heimis – „Ég man eftir mömmu á þessum tíma, annað hvort öskrandi eða sofandi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“