fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fókus

Hryllingurinn sem varð að heimsfyrirbæri – 15 hlutir sem þú vissir ekki um Saw

Fókus
Laugardaginn 9. nóvember 2019 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fimmtán ár eru síðan bíógestir horfðu upp á tvo karlmenn ranka við sér í baðherbergi í niðurníðslu og hlustuðu á hræðilegt plan sem goðsagnakenndi raðmorðinginn Jigsaw hafði sett saman. Við erum að sjálfsögðu að tala um hrollvekjuna Saw sem var frumsýnd í lok október árið 2004. Myndin fór eins og stormsveipur um heiminn og halaði inn rúmar hundrað milljónir dollara í miðasölu. Þótti þetta magnað afrek í ljósi þess að heildarkostnaður við myndina var aðeins um ein milljón dollara.

Framhaldið er þekkt. Í kjölfarið komu sex framhaldsmyndir, sú síðasta Saw 3D árið 2010. Árið 2017 var Jigsaw síðan frumsýnd og í maí á næsta ári eiga kvikmyndahúsagestir von á kvikmyndinni The Organ Donor í Saw-seríunni. Tekjur af Saw-myndunum eru farnar að nálgast milljarð dollara og því fannst DV tilvalið að fara yfir fimmtán staðreyndir um myndirnar sem jafnvel gallhörðustu aðdáendur þekkja ekki.

1. Fastir í lyftu

Þó að fyrsta myndin hafi gerst inni á baðherbergi var upprunalega hugmyndin að láta karlmennina tvo vera fasta í lyftu. Átti myndin að vera tekin upp frá sjónarhorni öryggismyndavéla til að gera framleiðsluna sem ódýrasta.

2. Tilviljanakennt nafn

James Wan og Leigh Wannell áttu hugmyndina að fyrstu Saw-myndinni, en nafnið á myndinni kom Leigh algjörlega óvart. „Ég gleymi aldrei þessum degi,“ sagði Leigh í samtali við Bloody-Disgusting er hann minntist samtals hans og James um söguþráð myndarinnar. „Ég man að ég skellti á og fór yfir þetta í hausnum. Án þess að hugsa mig mikið um eða pæla þá opnaði ég dagbókina mína og skrifaði orðið SAW. Þetta var ein af þessum stundum sem sýndi mér að stundum eiga hlutir bara að fara á vissan hátt.“

3. Mígrenisköstin lykillinn að Jigsaw

Það var í raun Leigh sem átti hugmynd að raðmorðingjanum Jigsaw eftir að hann fór til læknis vegna síendurtekinna mígreniskasta. Leigh hafði áhyggjur af því að hann væri með heilaæxli og var sendur í heilamyndatöku. „Ég hugsaði: Hvað ef ég fengi að vita um æxli og að ég ætti stutt eftir? Hvernig myndi maður bregðast við? Þannig að ég ímyndaði mér karakter sem fengi þennan tímaramma, sem væri sagt að hann ætti eitt, tvö ár eftir ólifað og að sjúkdómurinn myndi drepa hann hægt og bítandi,“ sagði Leigh við The A.V. Club árið 2010. „Síðan tengdi ég þá hugmynd við mann sem léti fólk ganga í gegnum bókstaflega útgáfu af sjúkdómnum.“

Raunveruleikinn kveikti neista Hvað ef þú ættir bara stutt ólifað, eins og Jigsaw?

4. Stuttmyndin breytti öllu

Þótt leikkonan Shawnee Smith hafi leikið Amöndu Young í alls sjö Saw-myndum þá er Shawnee ekki aðdáandi hrollvekja og hafnaði hlutverkinu í fyrstu þar sem handritið var „hryllilegt.“ Það var ekki fyrr en hún horfði á stuttmyndina Saw, einnig þekkta sem Saw 0.5, fyrirrennara Saw-myndanna, að hún þáði hlutverkið.

5. Reddingar

Fyrsta myndin var tekin á átján dögum og hafði tökuliðið aðeins úr tæpri milljón dollara að moða. Svo lítill var peningurinn að það mátt ekki taka hverja senu upp of oft. Þegar kom að eftirvinnslunni sá leikstjórinn James Wan fljótt að hann hafði ekki nógu margar tökur að vinna með. Því reyndi á sköpunargáfu hans og klipparans Kevins Greutert. Notuðu þeir til að mynda ljósmyndir til að fylla upp í eyður og bjuggu til nýjar tökur úr öryggismyndavél. „Við gerðum mikið til að fylla í eyðurnar í gegnum myndina. Þegar klippt er í blaðaúrklippur, öryggismyndavélar eða stillur í myndinni, sem fólk segir núna: Vá, þetta er svo svalur stíll í kvikmyndagerð, þá var þetta gert af nauðsyn einni til að koma í staðinn fyrir það sem við náðum ekki að gera á tökustað,“ sagði James í viðtali við The A.V. Club.

6. Heimatilbúin brúða

Billy, brúðan sem einkennir seríuna, var búin til af James. Um er að ræða andlit úr leir, pappamassa og svörtum borðtennisboltum. Þetta föndur kostaði nánast ekki neitt. Þegar að Saw II var í framleiðslu fékk Billy smá andlitslyftingu og var til dæmis hægt að fjarstýra honum.

Hrollvekjandi Brúðan Billy var ekki dýr í gerð.

7. Mikið á sig lagt

Þegar Saw sló í gegn í kvikmyndahúsum var gefið grænt ljós á Saw II. Hvorki James Wan né Leigh Whannell voru lausir til að vinna við myndina þannig að framleiðendur báðu Darren Lynn Bousman að breyta handriti sínu að myndinni The Desperate í Saw II. Darren tók að sér leikstjórn og fann Leigh tíma til að endurskrifa handritið.

8. 120.000 nálar

Eitt af frægustu atriðunum í Saw II gerist í svokölluðu „nálaherbergi“. Þá er Amanda Young sett í pytt sem er fullur af sprautunálum og þarf að finna lykil. Áður en atriðið var tekið upp þurftu fjórar manneskjur að eyða fjórum dögum í að taka nálar úr 120 þúsund sprautum og setja glæra trefjahausa í sprauturnar í staðinn. Nálarnar sem virtust stinga Amöndu voru sprautur sem voru festar við fóður innan á fötum hennar. Þá var gervihandleggur notaður í sumum af skotunum.

Martröð Nálaatriðið fræga.

9. Óvænt andlát

Upprunalega vildu hvorki James Wan, Leigh Whannell né Darren Lynn Bousman koma nálægt þriðju Saw-myndinni. En þegar framleiðandinn Gregg Hoffman, sem hafði unnið ötullega að því að koma Saw-myndunum á hvíta tjaldið, lést aðeins 42 ára, nokkrum vikum eftir frumsýningu Saw II, ákvað tríóið að slá til honum til heiðurs. „Við sátum saman og sögðum: Heyriði mig nú, þeir ætla að gera Saw III með eða án okkar, þannig að gerum hana fyrir Greg,“ sagði Darren í viðtali við ComingSoon.net árið 2006.

10. Hver hlær nú?

Framleiðendur Saw III þurftu að fá lánað lánað baðherbergi sem hafði verið búið til fyrir Scary Movie 4, en það baðherbergi hafði verið búið til til að líkjast baðherberginu í fyrstu myndinni til að gera grín að Saw-myndunum.

11. Á pari við klám

Það gerðist oft að bandaríska kvikmyndasambandið (MPAA) hótaði að banna Saw-myndirnar innan 17 ára. Hins vegar voru nokkrar breytingar gerðar svo myndirnar gætu náð til breiðari áhorfendahóps. Á Spáni var hins vegar Saw VI dæmd svo ofbeldisfull að hún fékk aðvörunina X, sem er aðallega notuð fyrir klámmyndir á Spáni. Myndin var aðeins sýnd í átta kvikmyndahúsum á Spáni og loks frumsýnd ári eftir heimsfrumsýningu. Þá var hún bönnuð innan 18 ára eftir að framleiðendur klipptu ofbeldisfyllstu senurnar út.

Of hræðileg Mikið var deilt um Saw VI.

12. Allt í uppnámi

Saw VI gekk hræðilega illa í kvikmyndahúsum og því þurfti að endurhugsa sjöundu og áttundu myndina sem voru á teikniborðinu. Úr varð að hætt var við áttundu myndina og sumar hugmyndir teknar úr henni og bætt í sjöundu myndina og úr varð Saw 3D. Sú mynd stóð sig helmingi betur en Saw VI.

13. Erfitt að vera nýnasisti

Linkin Park-söngvarinn heitni, Chester Bennington, lék í Saw 3D og þurfti að skella sér í hlutverk nýnasista. Chester þurfti hjálp leiklistarkennara til að skilja hlutverkið. „Þetta var í raun mun erfiðara en ég bjóst við, því ég þurfti að leggja mikið á mig til að leika þennan gaur og komast að því hvað hann vildi í gegnum myndina,“ sagði hann við ArtistDirect.com árið 2010.

Erfitt verkefni Chester þurfti að undirbúa sig vel fyrir Saw 3D.

14. Meira blóð

Þegar Saw 3D var í tökum var framtíðin óráðin og engan grunaði að Saw-myndirnar myndu ganga í endurnýjun lífdaga árið 2017 með myndinni Jigsaw. Því ákváðu framleiðendur Saw 3D að ljúka þessum kafla með hvelli og notuðu tæplega hundrað lítra af gerviblóði við tökur myndarinnar. Það er næstum því þrisvar sinnum meira blóð en var notað við gerð Saw II.

15. Ekki bara hryllingur

Allt frá frumsýningu fyrstu myndarinnar og þar til Saw VI var frumsýnd árið 2009 var árleg herferð Rauða krossins, Give Til It Hurts, haldin samhliða frumsýningum Saw-myndanna. Í herferðinni voru Bandaríkjamenn hvattir til að gefa blóð og þeir sem gáfu blóð í tengslum við herferðina fengu ókeypis miða á þá Saw-mynd sem var í sýningu. Á þessu tímabili voru tæplega sextíu þúsund lítrar af blóði gefnir sem þýðir að um 360 þúsund lífum var bjargað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Eva Ruza fer í skóför Felix

Eva Ruza fer í skóför Felix
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 3 dögum

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sonur Elísu og Elíss fæddur

Sonur Elísu og Elíss fæddur
Fókus
Fyrir 4 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“