fbpx
Sunnudagur 11.janúar 2026
Fókus

Margrét Erla svarar gagnrýni: „Eftir að hann skrifaði þetta virðist salan hafa rokið upp“

Fókus
Mánudaginn 22. júlí 2019 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margrét Erla Maack er að fara af stað með veislustjóranámskeið. Ekki eru allir spenntir fyrir því en Sverrir Ólafsson viðraði sína skoðun á Margréti Erlu á Facebook. Hins vegar hefur gagnrýni Sverris ekki haft neikvæð áhrif því sala á námskeiðinu hefur rokið upp í kjölfarið að sögn Margrétar Erlu.

Skjáskot/Facebook

Sverrir skrifaði:

„Ég hef verið í samkvæmi þar sem þessi Margrét var veislustjóri og það var alveg hroðalega ófyndið og ófagmannlegt allt saman. Algjört klúður og rugl. Er hún svo að fara að kenna öðrum veislustjórnun?! Það er sennilega hennar eini fyndni brandari.“

Margrét Erla birtir skjáskot af gagnrýninni frá Sverri og skrifar með því:

„Sverrir Ólafsson mælir alls ekki með Veislustjóranámskeið með Margréti Maack. Annars langar mig að þakka Sverri, því eftir að hann skrifaði þetta virðist salan á námskeiðin hafa rokið upp,“ segir Margrét Erla og bætir við:

„Partý eru nú bara þannig að þau geta ekki verið skemmtilegri en fólkið sem er í þeim.“

Ein skrifar við myndina hjá Margréti að líklegast sé um gervi-Facebook aðgang að ræða „sem gerir þetta ennþá fyndnara.“

Margrét Erla svarar henni: „Ég bara dýrka þetta. Langbesta auglýsing sem ég hef fengið. ATH ég er ekki á bakvið þennan gervi aðgang sjálf.“

Við nánari athugun á Facebook síðu Sverris er það að öllum líkindum rétt að ekki sé hann að koma fram undir réttu nafni né mynd.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Ætlaði að hafna einu þekktasta hlutverki sínu – Kallaði hlutverkið „helvítis heimsku“

Ætlaði að hafna einu þekktasta hlutverki sínu – Kallaði hlutverkið „helvítis heimsku“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Þetta voru vinsælustu kynlífstækin árið 2025 – „Landsmenn ófeimnir við að prófa sig áfram í pegginu“

Þetta voru vinsælustu kynlífstækin árið 2025 – „Landsmenn ófeimnir við að prófa sig áfram í pegginu“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sydney Sweeney gyllt og nakin á forsíðu

Sydney Sweeney gyllt og nakin á forsíðu
Fókus
Fyrir 3 dögum

Ástvinir hafa verulegar áhyggjur af eyðslu söngkonunnar – Gæti endað blönk og heimilislaus

Ástvinir hafa verulegar áhyggjur af eyðslu söngkonunnar – Gæti endað blönk og heimilislaus
Fókus
Fyrir 4 dögum

Óttast viðtökurnar þegar hann kemur til Íslands – „Eiga allir eftir að hata mig?“

Óttast viðtökurnar þegar hann kemur til Íslands – „Eiga allir eftir að hata mig?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Nær óþekkjanleg eftir að hafa skafið af sér 45 kíló

Nær óþekkjanleg eftir að hafa skafið af sér 45 kíló
Fókus
Fyrir 4 dögum

Þórir kvartaði að karlmenn séu sagðir hættulegir og graðir – Saga skýtur fast til baka: „Það þarf ekki nema að googla nafnið þitt“

Þórir kvartaði að karlmenn séu sagðir hættulegir og graðir – Saga skýtur fast til baka: „Það þarf ekki nema að googla nafnið þitt“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Jói dans selur á Seltjarnarnesi

Jói dans selur á Seltjarnarnesi