fbpx
Föstudagur 04.júlí 2025
Fókus

Minningarsjóður Einars Darra með fatalínu – Allur ágóði rennur til forvarnarfræðslu í grunnskólum

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 21. október 2018 12:00

Sólborg Guðbrandsdóttir Mynd: Ásta Kristjánsdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einar Darri Óskarsson, 18 ára drengur í blóma lífsins, var bráðkvaddur á heimili sínu þann 25. maí vegna lyfjaeitrunar. Fjölskylda og vinir Einars Darra stofnuðu minningarsjóð í nafni hans sem ætlaður er fyrir ungmenni í fíknivanda. Minningarsjóðurinn stendur fyrir og styrkir þjóðarátakið #egabaraeittlif.

Bleiku armböndin með áletruninni Ég á bara eitt líf hafa vakið athygli þjóðarinnar, en minningarsjóðurinn er með nokkur yfirstandandi verkefni í gangi og önnur í undirbúningi. Á meðal yfirstandandi verkefna má nefna armböndin og auglýsingar fyrir þau, auk fræðslu og forvarnarmyndbanda.

Ný heimasíða með vefverslun og fatalínu

Á sunnudag kl. 12 opnar minningarsjóðurinn nýja heimasíðu, egabaraeittlif.is, og vefverslun, auk þess sem ný fatalína verður sett í forsölu, en allur ágóði af sölu fatnaðarins rennur til forvarnarfræðslu í grunnskólum. Minningarsjóðurinn hefur þegar skrifað undir samning við Hvalfjarðarsveit um fræðslu þar.

Fatalínan samanstendur af hettupeysu, „crew neck“-peysu, stuttermabol, húfu og tösku. Allar vörur koma í þremur litum: bleikum, svörtum og hvítum. „Crew neck“-peysurnar fást bæði með áletrun og ekki, henta þær síðarnefndu því vel þeim sem vilja styrkja átakið og klæðast fatnaðinum, en geta ekki verið í of áberandi fatnaði starfs síns vegna eða af annarri ástæðu. Á öllum peysum er ofinn miði neðst með myllumerkinu á.

„Lógóið er nafn Einars Darra og kross af því að hann er farinn. Bleiki liturinn af því að hann var uppáhaldslitur hans,“ segir Una Hlín Kristjánsdóttir, ein af eigendum Duty, en hún sá um hönnun fatnaðarins. „Einar Darri er þarna uppi og vakir yfir okkur,“ segir Andrea Ýr Arnarsdóttir, systir hans. „Hann er verndarengillinn okkar.“

Atli Óskar Fjalarsson Mynd: Ásta Kristjánsdóttir

Myndirnar eru teknar af Ástu Kristjánsdóttur heima hjá Einari Darra í svefnherberginu hans og eru fyrirsæturnar ungmenni víðs vegar að úr samfélaginu.

Allar upplýsingar um Minningarsjóð Einars Darra, fatalínuna og önnur verkefni sjóðsins, bæði yfirstandandi og tilvonandi má finna á heimasíðu sjóðsins.

Stöndum saman og styðjum þjóðarátakið, Ég á bara eitt líf.

Kennitala: 510718-1510, reikningsnúmer: 552-14-405040

Sara Kamban Mynd: Ásta Kristjánsdóttir
Bjarki Aron Mynd: Ásta Kristjánsdóttir
Raffa Ello Mynd: Ásta Kristjánsdóttir
Ásrún Ásta Mynd: Ásta Kristjánsdóttir
Magnea og Bjarki Aron Mynd: Ásta Kristjánsdóttir
Emil Örn Mynd: Ásta Kristjánsdóttir
Alma Dögg Mynd: Ásta Kristjánsdóttir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Aðdáendur agndofa eftir að leikkonan birti mynd af sér með ketti sínum – „Þetta er ekki í lagi“

Aðdáendur agndofa eftir að leikkonan birti mynd af sér með ketti sínum – „Þetta er ekki í lagi“
Fókus
Í gær

Khloé Kardashian greinir frá öllum fegrunaraðgerðum sem hún hefur gengist undir

Khloé Kardashian greinir frá öllum fegrunaraðgerðum sem hún hefur gengist undir
Fókus
Fyrir 2 dögum

Klámstjarna látin aðeins 28 ára gömul

Klámstjarna látin aðeins 28 ára gömul
Fókus
Fyrir 2 dögum

Steingerður leitaði til spákvenna sem reyndist versta tímasóun – „Stundum yrði lífið léttbærara með þeirri vitneskju og stundum erfiðara“

Steingerður leitaði til spákvenna sem reyndist versta tímasóun – „Stundum yrði lífið léttbærara með þeirri vitneskju og stundum erfiðara“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Vikan á Instagram – Ber að ofan í „Sexico“

Vikan á Instagram – Ber að ofan í „Sexico“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Málið sem skók Pólland: Morðinginn afhjúpaði sig óvart í skáldsögu

Málið sem skók Pólland: Morðinginn afhjúpaði sig óvart í skáldsögu