Þungur andi hjá Félagsbústöðum: Sigrún sat heima á meðan starfsmenn skemmtu sér í Króatíu – „Það var bara af ákveðnum ástæðum“
FréttirFélagsbústaðir, sem eru fyrirtæki í eigu Reykjavíkurborgar með það meginlutverk að veita fólki í erfiðri stöðu leiguhúsnæði, hafa verið mikið í fréttum undanfarna daga vegna skelfingarástands í fjölbýlishúsi við Bríetartún, en íbúðir þar eru í eigu Félagsbústaða. Síbrotakona um þrítugt hefur haldið íbúum hússins í heljargreipum ofbeldis, þjófnaðar og skemmdarverka. Kona sem hætti að greiða Lesa meira
Framkvæmdastjóri Félagsbústaða um ástandið í Bríetartúni – „Þetta er sannarlega ekki góð staða“
Fréttir„Ég get því miður ekki talað opinberlega um málefni tiltekinna einstaklinga, en bæði þessi mál eru í vinnslu. Í öllum tilvikum þarf að fylgja ákveðnum lögum og reglum varðandi húsreglnabrot og önnur brot og við erum að fylgja því. En þetta er sannarlega ekki góð staða og erfið, það er bara slæmt,“ segir Sigrún Árnadóttir, Lesa meira
Sigurbjörg borin út og grætur ráðalaus úti á götu
FréttirÁ myndinni sem fylgir þessari frétt má sjá Sigurbjörgu Jónsdóttur í öngum sínum úti á gangstétt með eigur sínar í pokum eftir að hún var fyrr í dag borin út úr íbúð í fjölbýlishúsi, í Bríetartúni 20, sem er í eigu Félagsbústaða en ógnarástand hefur ríkt í húsinu vegna ofbeldis og skemmdarverka af hálfu annarrar Lesa meira
Útburður að hefjast á Sigurbjörgu úr hryllingshúsinu við Bríetartún – „Ég fékk tvo virka daga til að vinna í málinu“
FréttirFulltrúar sýslumanns eru mættir í húsnæði í eigu Félagsbústaða við Bríetartún til að bera út leigjandann Sigurbjörgu Jónsdóttur vegna vanskila á leigu. Sigurbjörg hætti að borga leigu til að leggja áherslu á kröfu sína um að hún fengi milliflutning enda býr hún í sama stigagangi og kona sem hefur haldið íbúum hússins í heljargreipum ofbeldis Lesa meira
Eyþór var rekinn fyrir framan alla: „Mér var sýnd mikil niðurlæging“
FréttirUpplausn virðist ríkja á skrifstofu Félagsbústaða eftir að starfsmenn skrifuðu undir vantraustsyfirlýsingu á hendur framkvæmdastjóranum Sigrúnu Árnadóttur og sendu á stjórn Félagsbústaða. Í Morgunblaðinu í dag er farið í saumana á málinu þar sem fram kemur að tilefni yfirlýsingarinnar sé uppákoma sem varð á starfsmannafundi fyrir tveimur vikum, föstudaginn 28. febrúar. Þar var starfsmaður rekinn Lesa meira
Keypti sér íbúð í húsi þar sem leigjandi Félagsbústaða býr – Sér eftir því í dag
FréttirÚrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur sent frá sér úrskurð í máli manns sem fór fram á aðgang að gögnum Félagsbústaða hf. vegna kvartana sem hafa borist félaginu vegna leigjenda íbúðar í eigu þess. Keypti maðurinn sér íbúð í sama húsi og umrædd íbúð Félagsbústaða er og fór fram á að fá gögnin afhent til að nýta Lesa meira
Skuldabréf Félagsbústaða skráð á markað hjá Nasdaq – Nafnvirðið 6.4 milljarðar
EyjanFélagsbústaðir skráðu í dag fyrsta félagslega skuldabréfið á markað Nasdaq Iceland fyrir sjálfbær skuldabréf, samkvæmt tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Skuldabréfið er um 6,4 milljarðar að nafnvirði og er verðtryggt til 47 ára. Tilgangurinn með útgáfunni er að fjármagna byggingu á leiguíbúðum Félagsbústaða, en markmiðið er að fjölga íbúðum um 500 fram til ársins 2022. Félagslegu skuldabréf Lesa meira
„Leigjendur eru ekki velkomnir í stjórnir húsfélaga Félagsbústaða“
EyjanTillögum borgarfulltrúa Flokks fólksins í borgarráði um að leigjendur taki sæti í stjórn húsfélags um íbúðir Félagsbústaða á Lindargötu 57-66, sem bornar voru upp í sumar, var vísað frá í morgun með þeim rökum að málið væri ekki á forræði borgarinnar. Kolbrún Baldursdóttir segir þetta koma á óvart, þar sem Félagsbústaðir séu í eigu Reykjavíkurborgar Lesa meira
Kolbrún um nýjasta útspil Reykjavíkurborgar – „Tekið við mörgum símtölum frá grátandi fólki“
EyjanKolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins, hyggst beina athygli meirihlutans að Félagsbústöðum á fundi borgarstjórnar í dag. Tilefnið er lækkun húsnæðisstuðnings til þeirra öryrkja sem fengu leiðréttingu bóta með lögum síðastliðið sumar, sem leiðir til hærri húsleigu en ella. „Við þessu hefur borgarmeirihlutinn og velferðarráð ekki brugðist. Það hefur því gerst að Félagsbústaðir hafa lækkað sérstakan Lesa meira
Segir Félagsbústaði vera rekna eins og banka: „Þessi breyting er með eindæmum ómanneskjuleg“
EyjanKolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins, lagði fram tillögu á fundi velferðarráðs um að Félagsbústaðir sæju sjálfir um að innheimta skuld á leigu og greiðsludreifingu skulda hjá leigjendum sínum, líkt og áður hafi verið gert. Nýlega varð breyting á hjá Félagsbústöðum á þessu, þar sem félagið fékk Mótus til að sjá um innheimtu skulda fyrir sig, Lesa meira