fbpx
Mánudagur 15.júní 2026
Kynning

Margverðlaunaður óáfengur handverksbjór To Øl loksins í íslenskum verslunum

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 15. maí 2026 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslendingar hafa sjaldan verið jafn uppteknir af heilbrigðum lífsstíl og nú, sem endurspeglast í gríðarlegri aukningu á sölu áfengislausra drykkja. Nú berast þær fréttir að einn virtasti handverksframleiðandi Evrópu, To Øl, sé mættur með sína vinsælustu línu í íslenskar matvöruverslanir.

Þeir sem fylgjast með bjórmenningunni ættu að kannast vel við nafnið To Øl. Þetta danska fyrirtæki, sem hóf göngu sína í bílskúr í Kaupmannahöfn árið 2010, er í dag eitt virtasta handverksbrugghús heims. Fram að þessu hafa áfengislausu bjórarnir úr Implosion-línunni þeirra aðallega sést á fínustu veitingastöðum landsins, á borð við Dill og Skál, en nú geta bjóráhugamenn nálgast þá í næstu verslun.

Bragðið í fyrirrúmi 

Það sem gerir Implosion-línuna einstaka er bruggunaraðferðin sjálf. Flestir áfengislausir bjórar eru bruggaðir sem venjulegir bjórar þar sem áfengið er síðan soðið úr eða eimað frá , sem getur haft veruleg áhrif á bragðgæðin og fyllinguna.

To Øl fer aðra leið. Implosion er hannaður frá grunni sem áfengislaus bjór þar sem bruggunin er stöðvuð náttúrulega við 0,3% eða 0,5%. Með þessu móti varðveitist karakterinn, ferskleikinn og dýptin í bragðinu. Þetta er bjór fyrir fólk sem elskar bjór, en vill sleppa áfenginu.

Hin fullkomna tvenna: IPA eða Lager?

Innreið To Øl í íslenskar verslanir þýðir að úrvalið af vönduðum áfengislausum valkostum tekur mikið stökk. Í fyrstu atrennu eru það tvær ólíkar tegundir sem munu prýða hillurnar:

  • Implosion IPA: Léttskýjaður þar sem suðrænir ávextir og sítrustónar ráða ríkjum. Þetta er flaggskip To Øl  sem hefur slegið í gegn um allan heim og er fullkominn valkostur fyrir þá sem vilja kraftmikinn karakter án áhrifanna.
  • Implosion Lager: Stökkur, tær og svalandi. Hér er um að ræða klassískan lagerbjór með frábæru jafnvægi á milli maltsætu og hóflegrar beiskju. Hann er kjörinn drykkur með mat, eftir vinnu eða sem ferskur svaladrykkur eftir góða æfingu.

„Ekki lengur spurning um að sleppa því að drekka“

Neysluvenjur hafa breyst mikið á síðustu árum. Það er ekki þar með sagt að allir séu hættir að drekka, heldur velur fólk óáfenga valkosti við mun fleiri tækifæri en áður. Munurinn í dag er hins vegar sá að neytendur sætta sig ekki lengur við bragðlaust „bjórlíki“. Þegar fólk velur óáfengt, þá vill það fá almennilega vöru.

Þessi þróun er komin til að vera; þetta snýst ekki um að „sleppa því að drekka“, heldur um að njóta lúxusvöru sem stendur fyllilega undir nafni, hvort sem þú átt leið undir stýri eða vilt einfaldlega vakna ferskur og tilbúinn í daginn.

Hvar fást Implosion bjórarnir?

Góðu fréttirnar eru þær að nú er hægt að grípa Implosion með í innkaupakörfuna. Bjórarnir eru þegar komnir í sölu í helstu verslanir Krónunnar ogHagkaupa ásamt Melabúðinni.

Slepptu áhrifunum, ekki bragðinu.

Hér getur þú lesið nánar  um vöruúrval To Øl 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
16.05.2025

Sumarsýning Heklu – Nýr og glæsilegur Škoda Enyaq, sértilboð og dagskrá fyrir alla fjölskylduna

Sumarsýning Heklu – Nýr og glæsilegur Škoda Enyaq, sértilboð og dagskrá fyrir alla fjölskylduna
Kynning
31.01.2025

Beiersdorf lyftir baráttunni gegn ótímabærri öldrun húðarinnar – Sjáanleg áhrif á 5 mínútum og langtíma meðferð gegn hrukkum

Beiersdorf lyftir baráttunni gegn ótímabærri öldrun húðarinnar – Sjáanleg áhrif á 5 mínútum og langtíma meðferð gegn hrukkum
Kynning
29.01.2025

Fyrirtækjaþjónusta IKEA – fagleg ráðgjöf þér að kostnaðarlausu

Fyrirtækjaþjónusta IKEA – fagleg ráðgjöf þér að kostnaðarlausu
Kynning
08.11.2024

Frumsýna Audi Q6 á morgun – Kaflaskil í hönnun rafbílsins vinsæla

Frumsýna Audi Q6 á morgun – Kaflaskil í hönnun rafbílsins vinsæla
Kynning
06.11.2024

TIME útnefnir ökumannsskilningskerfi Volvo EX90 eina af bestu uppfinningum ársins 2024

TIME útnefnir ökumannsskilningskerfi Volvo EX90 eina af bestu uppfinningum ársins 2024