fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
433Sport

Tveir risar horfa til Manchester – Vilja bregðast skjótt við

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 11. maí 2026 12:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester City vill tryggja framtíð varnarmannsins Josko Gvardiol hjá sér eftir að bæði Real Madrid og Bayern Munchen settu sig í samband við umboðsmann hans. Teamtalk heldur þessu fram.

Gvardiol hefur verið meiddur frá því í byrjun árs en er í miklum metum hjá City, sem vill alls ekki missa hann. Króatinn er fjölhæfur og getur leyst stöðu vinstri bakvarðar og miðvarðar vel.

Samningur hins 24 ára gamla Gvardiol í Manchester rennur út eftir tvö ár og vill City framlengja við hann í ljósi áhuga Real og Bayern. Yrði þá væn launahækkun í boði einnig.

Gvardiol kom til City frá RB Leipzig árið 2023 og þekkir þýska boltann því vel, sem gæti hjálpað mikið ef hann heldur til Bayern.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Segir frá skilaboðum sem Gabriel sendi honum eftir hið hjartnæma augnablik

Segir frá skilaboðum sem Gabriel sendi honum eftir hið hjartnæma augnablik
433Sport
Í gær

Svakalegur slagur um táning í Svíþjóð – 3,5 milljarða tilboð borist en stórlið íhugar að bjóða enn betur

Svakalegur slagur um táning í Svíþjóð – 3,5 milljarða tilboð borist en stórlið íhugar að bjóða enn betur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Olise er leikmaðurinn sem Perez ætlar að kaupa – Tilbúinn að borga 130 milljónir punda

Olise er leikmaðurinn sem Perez ætlar að kaupa – Tilbúinn að borga 130 milljónir punda
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fullyrt að Aron Einar sé líklega á heimleið í Þorpið

Fullyrt að Aron Einar sé líklega á heimleið í Þorpið