

Gary Neville hefur gagnrýnt miðjumanninn Martin Zubimendi og segir að frammistaða hans hjá Arsenal hafi valdið vonbrigðum undanfarnar vikur.
Arsenal vann 1-0 sigur á Newcastle United um helgina og komst aftur á topp deildarinnar, en Neville var ekki sannfærður af spilamennsku liðsins. Hann benti sérstaklega á Zubimendi, sem kom frá Real Sociedad síðasta sumar fyrir um 60 milljónir punda.
„Ég hélt í byrjun tímabils að þetta væru frábær kaup, en ég bjóst við meira frá honum á þessum tímapunkti,“ sagði Neville.
Hann telur að Zubimendi hafi ekki tekið stjórn á miðjunni eins og vænst var af honum.
Neville bar hann saman við leikmenn á borð við Andrea Pirlo, Paul Scholes, Rodri og Bernardo Silva og sagði Zubimendi ekki sýna sömu yfirburði í leikstjórn.
Hann telur einnig að taktísk vandamál séu til staðar á miðsvæði Arsenal eftir að Newcastle skapaði þeim veruleg vandræði á miðjunni.