fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Fréttir

Gylfi Þór minnist móður sinnar sem var myrt – „Ég mun kveikja á kerti í kvöld“

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 27. apríl 2026 17:30

Móðir Gylfa Þórs var myrt á þessum degi fyrir 30 árum síðan.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gylfi Þór Þorsteinsson, oddviti Viðreisnar í Mosfellsbæ og sviðsstjóri hjá Rauða krossinum, minnist móður sinnar sem var myrt á þessum degi fyrir þrjátíu árum. Hann segir að alltaf hafi verið stutt í gleðina hjá henni.

„Í dag eru 30 ár síðan mamma mín var myrt, elsta dóttir mín var þá mánaðargömul og ég 26. ára. Enn þann dag í dag er fólk sem ég þekki ekki að koma upp að mér og minnast mömmu, þannig er líf efir dauðan,“ segir Gylfi Þór. „Ég mun kveikja á kerti í kvöld og minnast hennar með hlýju og gleði, því þannig var hún. Hlý og alltaf stutt í gleðina.“

Birtir hann mynd af fermingardegi móður sinnar.

„Nú eru börnin mín á svipuðum aldri og ég var þá, setur þetta allt í sérstakt samhengi fyrir mig nú,“ segir Gylfi Þór.

Sjá einnig:

Gylfi Þór opnar sig um morðið á móður sinni – „Þetta var sjón sem ég mun aldrei gleyma“

Móðir Gylfa Þórs var myrt árið 1996 á sveitabæ á Norðurlandi af bróður sínum. Hún hafði þá farið þangað til þess að gera upp mál eftir andlát móður þeirra. Bæði Gylfi Þór og faðir hans voru yfirheyrðir út af málinu á sínum tíma á lögreglustöðinni á Akureyri.

„Þegar pabbi losnaði úr yf­ir­heyrsl­unni hjá lög­regl­unni fór­um við upp á hót­el og kveikt­um á sjón­varp­inu. Þar var fyrsta frétt að morð hefði verið framið á þess­um bæ og mynd af bæn­um. Þannig frétt­um við að hún hefði verið myrt,“ sagði Gylfi Þór á sínum tíma í viðtali við mbl.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Ása föst í hryllingshúsinu: „Fólk gengur stöðugt framhjá húsinu, tekur myndir og bendir“

Ása föst í hryllingshúsinu: „Fólk gengur stöðugt framhjá húsinu, tekur myndir og bendir“
Fréttir
Í gær

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést