fbpx
Þriðjudagur 19.maí 2026
EyjanFastir pennar

Óttar Guðmundsson skrifar: Fótboltabömmer

Eyjan
Laugardaginn 14. mars 2026 06:00

GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég var alinn upp í Sigtúninu rétt hjá æfingasvæði Knattspyrnufélagsins Fram fyrir neðan gamla Sjómannaskólann. Draumur minn var að verða heimsþekktur knattspyrnumaður svo að ég dvaldist löngum stundum á Framvellinum. Mér til ólýsanlegrar sorgar var ég afspyrnulélegur í fótbolta. Mig skorti eðlilega samhæfingu útlima, höfuðs og bols. Ég gat ekki haldið knetti á lofti með nokkrum snertingum heldur hljóp hann frá mér eins og óþægt barn. Yfirleitt lenti ég í ruslflokknum sem enginn vildi hafa í liði með sér.

Þetta voru sárustu vonbrigði æskunnar. Ég hætti að mæta á æfingar en var áfram Framari í hjartanu. Maður getur skipt um konu, en það er ekki hægt að skipta um fótboltalið.

Þrátt fyrir þessar ófarir gerðist ég mikill áhugamaður um fótbolta. Ég hélt með Fram, þýska landsliðinu, Bayern Munchen og Tottenham Hotspurs. Á langri ævi hef ég eytt gríðarlegum tíma að fylgjast með alls konar fótboltakeppnum.

Með árunum hefur knattspyrnan orðið sífellt leiðinlegri. Í lok keppnistímabils eru heilu og hálfu liðin komin á meiðslalista vegna vaxandi ofbeldis sem dómarar láta óátalið. Leikmenn eins og Maradona eða Pele gætu ekki blómstrað í fótboltanum í dag. Þeir yrðu miskunnarlaust sparkaðir niður af geðstirðum hollenskum steratröllum. Alls konar leikaraskapur er leyfður. Menn falla eins og riðuveikar rollur við minnstu snertingu til að fiska fríspörk eða víti. Sjónvarpsdómgæsla (VAR) hefur endanlega drepið skemmtanagildi leiksins. Dómarar dæma á brot sem þeir sjá ekki fyrr en í tíundu endursýningu. Rangstöðudómar eru orðnir jafn torræðir og véfréttin í Delfí. Innan vítateigs ættu leikmenn að vera handleggjalausir því að allt kostar víti. Menn reyna af alefli að tefja leikinn með leikrænum tilburðum. Óheiðarleiki blómstrar eins og alls staðar þar sem peningar hafa tekið völdin. VAR hefur murkað lífið úr hraðri framvindu leiksins.

Maður þakkar fyrir að hafa fengið að kynnast snillingi eins og Maradóna og fagnar því að hann skyldi ekki þurfa að sjá þessa niðurlægingu fótboltans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Undur veraldar og afhjúpunin

Svarthöfði skrifar: Undur veraldar og afhjúpunin
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Síðasta kaffikynslóðin

Nína Richter skrifar: Síðasta kaffikynslóðin
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Oddvitar í sviðsljósi

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Oddvitar í sviðsljósi
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Vinsælasta samvinnuhreyfing Evrópu

Sigmundur Ernir skrifar: Vinsælasta samvinnuhreyfing Evrópu
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir: Uppsögn ótímabundinna leigusamninga

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir: Uppsögn ótímabundinna leigusamninga
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Missir Sjálfstæðisflokksins

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Missir Sjálfstæðisflokksins
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Thomas Möller skrifar: Kosningar unga fólksins

Thomas Möller skrifar: Kosningar unga fólksins
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Viðhaldsframkvæmdir í fjöleignarhúsum

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Viðhaldsframkvæmdir í fjöleignarhúsum