fbpx
Föstudagur 15.maí 2026
Eyjan

Orðið á götunni: Veit Einar Þorsteinsson hvenær hann segir satt og hvenær hann er að ljúga?

Eyjan
Föstudaginn 15. maí 2026 13:30

Einar Þorsteinsson. Mynd: Skjáskot RÚV.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einar Þorsteinsson endurtekur nú í sífellu að hann útiloki samstarf við Samfylkinguna í borgarstjórn, nái hann á annað borð kjöri í kosningunum á morgun. Ástæðan er að sögn Einars sú að Samfylkingin hafi reynst óhæf í samstarfi, staðið í vegi fyrir breytingum sem Framsókn hafi talið nauðsynlegar.

Einar sleit meirihlutasamstarfi við Samfylkinguna 7. febrúar 2025 og sagði í viðtali við RÚV sama dag: „Ég hef tekið þá ákvörðun að slíta meirihlutasamstarfinu. Við teljum að við höfum ekki náð þeim árangri fyrir Reykvíkinga sem við lofuðum þeim. Við lofuðum þeim breytingum og í þessu samstarfi tekst okkur ekki að knýja fram breytingar sem við teljum nauðsynlegar.“

Orðið á götunni er að þetta útspil Einars hafi komið samstarfsflokkunum fyrrverandi í opna skjöldu, enda hafði hann einungis nokkrum dögum fyrr lokið sérstöku lofsorði á Samfylkinguna og verk hennar í borgarstjórn og gert að umtalsefni hve samstarfið væri farsælt og auðvelt. Á fundi borgarstjórnar 21. janúar 2025, síðasta borgarstjórnarfundi Dags B. Eggertssonar, tók Einar til máls og sagði m.a.:

Og það er bara mjög fallegt að hérna, að sjá það hvað Dagur hefur haft mikil áhrif sem leiðtogi í Samfylkingunni frá árinu 2002. Og gaman að fylgjast með upprifjun á þessum verkefnum sem að hann hefur verið að berjast fyrir. Og þau eru sannarlega mjög stór. Og miklar ákvarðanir sem hafa verið teknar og hann hefur haft gríðarleg áhrif á Reykjavíkurborg og reyndar höfuðborgarsvæðið allt. Þannig að hérna, mig langar að þakka Degi B. Eggertssyni fyrir mjög gott samstarf.

Það var ekki sjálfgefið að mynda meirihluta með þessum manni sem maður barðist gegn í kosningabaráttunni. En það hefur verið mjög farsælt og í grunninn mjög auðvelt og þeir mannkostir sem að hafa verið nefndir hér, að halda vel utan um hópinn og vera heiðarlegur gagnvart sínu fólki og blátt áfram, það er bara, ég get tekið undir það allt.“

Hér má hlusta á ræðu Einars í heild:

borgarstjorn.mp4
play-sharp-fill

borgarstjorn.mp4

Í ljós kom að Einar hafði verið að plotta nýjan meirihluta í einhvern tíma og var búinn að handsala nýjan meirihluta með Sjálfstæðisflokknum. Saman höfðu Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn 10 borgarfulltrúa en ef tækist að fá Viðreisn og Flokk fólksins að borðinu var kominn meirihluti. Það kom hins vegar engum á óvart, nema Einari Þorsteinssyni, þegar ljóst varð að Flokkur fólksins hafði nákvæmlega engan áhuga á samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn, sem hafði staðið fyrir stöðugum árásum á Flokk fólksins á Alþingi. Þannig plottaði Einar sig úr stóli borgarstjóra. Sannarlega með tilþrifamestu pólitísku sjálfsmörkum sem hafa sést.

Orðið á götunni er að vitaskuld hafi það verið tylliástæða hjá Einari Þorsteinssyni að Samfylkingin stæði í vegi fyrir umbótum Framsóknar í borginni. Staðreynd málsins sé sú að í þingkosningunum í lok nóvember 2024 hrundi fylgi Framsóknar og flokkurinn fékk sína verstu útreið frá byrjun og þurrkaðist út á höfuðborgarsvæðinu. Skoðanakannanir sýndu að traust kjósenda til Einars og borgarstjórnarflokks Framsóknar var lítið sem ekkert og hann hélt að hann gæti klórað í bakkan með því að sprengja meirihlutann og mynda nýjan með Sjálfstæðismönnum.

Eftir stendur að ávirðingar Einars á hendur Samfylkingunni stangast algerlega á við hans eigin orð allt þar til hann tók þessa frægu U-beygju sem kostaði hann borgarstjórastólinn. Á 18 dögum fór hann frá því að vera kjánalega lukkulegur með samstarfið við Samfylkinguna í að segja Samfylkinguna óalandi og óferjandi.

Orðið á götunni er að stjórnmálamenn, hvar í flokki sem þeir eru, hagi gjarnan seglum eftir vindi og segi það sem þeir telja að fólk vilji heyra frekar en sannleikann. Það er hins vegar grundvallaratriði að stjórnmálamennirnir viti sjálfir hvenær þeir eru að segja satt og hvenær þeir ljúga. Kjósendur geta ekki með nokkru móti áttað sig á því hvenær Einar Þorsteinsson er að segja satt og hvenær hann er að ljúga. Ætli hann viti það sjálfur?

Eitt sinn var sagt um annan stjórnmálamann að það væri alltaf hægt að átta sig á því hvenær hann væri að ljúga. Það væri þegar hann opnaði munninn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Pétur Marteinsson: Óábyrgt að taka upp Samgöngusáttmálann – fáum ekkert svona samkomulag aftur

Pétur Marteinsson: Óábyrgt að taka upp Samgöngusáttmálann – fáum ekkert svona samkomulag aftur
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Björg Magnúsdóttir: Ekki hlutverk borgarfulltrúa að stækka selalaugina eða gefa út afmælisleiðbeiningar

Björg Magnúsdóttir: Ekki hlutverk borgarfulltrúa að stækka selalaugina eða gefa út afmælisleiðbeiningar
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Veifiskatar og vindhanar vaða uppi í Miðflokki og Sjálfstæðisflokki

Orðið á götunni: Veifiskatar og vindhanar vaða uppi í Miðflokki og Sjálfstæðisflokki
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Björg Magnúsdóttir: Getum ekki bara gert Reykjavík að einhverri bandarískri bílaborg

Björg Magnúsdóttir: Getum ekki bara gert Reykjavík að einhverri bandarískri bílaborg
Hide picture