fbpx
Fimmtudagur 07.maí 2026
Eyjan

Orðið á götunni: Flýr Ásdís Kristjánsdóttir Kópavog eins og Rósa Guðbjartsdóttir flúði úr bæjarstjórn Hafnarfjarðar?

Eyjan
Þriðjudaginn 5. maí 2026 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eftir að Bjarni Benediktsson hrökklaðist úr embætti formanns Sjálfstæðisflokksins og sagði af sér þingmennsku eftir afhroð flokksins í kosningunum þann 30. nóvember 2024 og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir tekur við sendiherraembætti er Sjálfstæðisflokkurinn í Suðvestur kjördæmi höfuðlaus her. Þetta kjördæmi hefur hin síðari ár verið flaggskip flokksins en á nú í vök að verjast. Í nýrri Gallup-könnun reyndist flokkurinn vera í þriðja sæti eftir að hafa haft mesta fylgi allra í kjördæminu um árabil.

Ljóst er að í næstu þingkosningum eftir tvö og hálft ár verður flokknum valin ný forysta í kjördæminu því engum gæti komið til hugar að treysta Bryndísi Haraldsdóttur, Rósu Guðbjartsdóttur eða Jóni Gunnarssyni fyrir forystu flokksins í kjördæminu. Efstu sæti Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu eru mikilvægar valdastöður í flokknum með tilliti til formennsku, varaformennsku eða ráðherraembætta þegar og ef flokkurinn kemst aftur í ríkisstjórn.

Orðið á götunni er að Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri flokksins í Kópavogi, hafi takmarkalausan pólitískan metnað. Hermt er að hún hafi þegar sett stefnuna á að tryggja sér efsta sæti flokksins í kjördæminu næst þegar kosið verður til Alþingis, væntanlega í lok árs 2028. Sjálfstæðisflokkurinn myndar nú meirihluta í Kópavogi með Framsókn en samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum er meirihluti þeirra fallinn með því að Framsókn hefur misst annan af fulltrúum sínum í bæjarstjórninni. Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi en heldur sínum fjórum bæjarfulltrúum ef marka má umrædda skoðanakönnun Maskínu. Verði það niðurstaðan er alls ekki víst að Ásdís haldi stöðu bæjarstjóra þó að nokkrir möguleikar séu fyrir hendi á myndun nýs meirihluta – með eða án Sjálfstæðisflokksins.

Algengt er að sveitarstjórnarmenn noti embætti sín sem stökkpall inn á Alþingi. Um það eru fjölmörg þekkt dæmi úr sögunni. Það getur alveg verið jákvætt og ekkert við það að athuga ef menn eru ekki að flýja sökkvandi skip. Rósa Guðbjartsdóttir virðist hafa séð að flokkur hennar og Framsókn í Hafnarfirði réðu ekkert við að stjórna Hafnarfirði sem er þriðja stærsta sveitarfélag landsins. Rósa hvarf af vettvangi bæjarstjórnar og tók sæti á Alþingi í lok árs 2024. Pólitísk þróun í bænum hefur oft þótt vera mælikvarði á gang þjóðmálanna á Íslandi enda hafa margir áhrifamiklir stjórnmálamenn komið úr Hafnarfirði eins og t.d. Emil Jónsson, Matthías Á. Mathiesen, Árni sonur hans og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar og utanríkisráðherra.

Orðið á götunni er að viðskilnaður Sjálfstæðisflokksins eftir yfirstandandi kjörtímabil sé með þeim hætti að fylgið hrynur af flokknum eins og fram hefur komið í skoðanakönnunum sem birtar hafa verið á DV og Vísi.is. Sjálfstæðisflokkurinn hafði mest fylgi allra fyrir fjórum árum en mælist nú í þriðja sæti á eftir Samfylkingunni og Viðreisn sem gætu myndað meirihluta gangi þessar skoðanakannanir eftir. Rósa Guðbjartsdóttir yfirgaf því sökkvandi skip.

Ætla má að barist verði um forystusætin á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvestur kjördæmi fyrir næstu þingkosningar enda eftir miklu að sækjast. Ásdís Kristjánsdóttir hlýtur að koma sterklega til greina sem leiðtogi listans þegar þar að kemur. Kjósendur í Kópavogi ættu að hafa það í huga þegar þeir greiða atkvæði í Kópavogi þann 16. maí nk. Ekki er víst að Ásdís þjóni bænum lengi í viðbót – hvort sem hún verður í meirihluta eða í stjórnarandstöðu.

Orðið á götunni er að manni Sjálfstæðisflokkurinn í Kraganum ekki forystusæti sín með öflugu fólki þá lýsi það óvæntri uppgjöf.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Nína Richter skrifar: Íslenska svefnleikhúsið

Nína Richter skrifar: Íslenska svefnleikhúsið
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Háskólaprófessor: Andstæðingar aðildar hengja sig í algjör smáatriði – drepa innihaldsríkri umræðu á dreif

Háskólaprófessor: Andstæðingar aðildar hengja sig í algjör smáatriði – drepa innihaldsríkri umræðu á dreif
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Yfirþjóðlegt vald ESB

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Yfirþjóðlegt vald ESB
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Viðreisnarvor um allt land

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Viðreisnarvor um allt land
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Delluhugmyndir um kennslu

Björn Jón skrifar: Delluhugmyndir um kennslu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Halla Hrund Logadóttir: Meiri samvinnu, minni pólitík – þarf að vera skikk á hlutunum

Halla Hrund Logadóttir: Meiri samvinnu, minni pólitík – þarf að vera skikk á hlutunum