fbpx
Mánudagur 17.júní 2024
Eyjan

Diljá vill trúð á Bessastaði – „Jón Gnarr er æðislegur trúður og góður leiðtogi á sama tíma“

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 24. maí 2024 15:00

Myndin er augljóslega samsett.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég vil fá trúð á Bessastaði. Ég elska trúða og þeirra nálgun á heiminn í kringum sig. Í trúðafræðum er lögð áhersla á að nálgast öll mannleg samskipti í kærleika og einlægni. Trúðafræði er nefnilega fræðigrein sem fólk nemur í sérstökum trúðaskólum. Ég man ljóslifandi eftir því þegar ég sat fyrirlestur með trúðinum, mannvininum og lækninum Patch Adams sjálfum (en Robin Williams gerði hann heimsfrægan þegar hann lék hann í samnefndri bíómynd sem kom út 1998) og hann sagði að það hefði tekið hann jafn langan tíma að mennta sig í læknisfræðum og trúðafræðum. Bara svona til viðmiðunar.

Jón Gnarr hefur ekki farið í trúðanám svo ég viti til. Hann er samt æðislegur trúður og góður leiðtogi á sama tíma,“ 

segir Diljá Ámundadóttir Zoega kynningarstjóri Listaháskóla Íslands í pistli á Vísi. 

Vísar hún í samtal konu sem hún þekkir sem er á níræðisaldri og býr í þjónustuíbúðakjarna fyrir eldri borgara. „Á dögunum sat þessi kona að snæða hádegisverð með öðrum konum sem búa í sama húsi og að sjálfsögðu báru forsetakosningarnar á góma. Þegar það kom að minni konu að segja hvern hún hyggst kjósa þann 1. júní sagði hún Jón Gnarr. Hinar konurnar hváðu og spurðu: Afhverju viltu fá trúð á Bessastaði? Og hún svaraði: Æ af því að hann er svo einlægur eitthvað, fyndinn og góður við dýr og menn. Er það ekki það sem við viljum?“ 

Birtingarmynd trúðs er alls konar

Segist Dilja sammála konunni og vilja Jón Gnarr sem forseta á Bessastaði. Segir hún birtingarmynd trúðs geta verið alls konar. 

„Fyrst kemur upp í hugann sirkustrúðurinn hressi og kannski þessi sem er fenginn í barnaafmæli að gera blöðrudýr. Svo er það óhugnalegi trúðurinn úr hryllingsmyndum. Svo er það trúður eins og Jón Gnarr. Slíkir trúðar birtast einmitt einstöku sinnum á sviði stjórnmálanna og þá í formi leiðtoga sem kemur hreint til dyranna, viðurkenni veikleika sína og slær fólk út af laginu með einlægni, óvenjulegum málflutningi og nýjum áherslum. Eins og við fengum að kynnast þegar Besti flokkurinn fór fram (og sigraði!) í sveitarstjórnarkosningum vorið 2010,“ segir Diljá.

„Trúðurinn er mikil tilfinningavera, alltaf í núinu og talar bara um það sem hann sér og er aldrei að þykjast. Trúður kann bara að segja sannleikann og er ólíkindatól. Þess vegna kunna sumir ekkert sérstaklega vel við hann. Kannski einmitt af því að hann er alltaf að segja sannleikann og það hentar bara ekkert öllum alltaf. En hann segir okkur oft það sem við vitum en vissum ekki að við vitum. Eða bendir okkur á það sem við sjáum, en erum alltaf að þykjast ekki sjá. Eins og til dæmis bleika fílinn.

Þegar ég vann með Jóni Gnarr í Besta flokknum á sínum tíma sá ég hann oft benda öllum í kringum sig á bleika fílinn í herberginu í Ráðhúsinu. Og ekki nóg með það þá hefur hann líka náð að berstrípa fílinn úr öllum lögunum sem hann hefur klætt sig í. Líkt og hirðfíflið sem sagði sannleikann um berassaða kónginn og yfirvaldið.

Ég held að það sé kominn tími á að hirðfíflið skipti um stað við kónginn og við séum tilbúin fyrir sannleikssegjandi trúð sem forseta Íslands?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Brynjar furðar sig á þessu þegar hann kveikir á sjónvarpinu – „Það þurfa allir að fara að lögum og reglum, líka þeir sem eru stíflaðir úr frekju“

Brynjar furðar sig á þessu þegar hann kveikir á sjónvarpinu – „Það þurfa allir að fara að lögum og reglum, líka þeir sem eru stíflaðir úr frekju“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Eftir kosningar

Óttar Guðmundsson skrifar: Eftir kosningar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Hroki og hræsni utanríkisráðherra og ríkisstjórnar gagnvart nýkjörnum forseta og Úkraínu

Þorbjörg Sigríður: Hroki og hræsni utanríkisráðherra og ríkisstjórnar gagnvart nýkjörnum forseta og Úkraínu
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Spurning um pólitísk eftirmál

Þorsteinn Pálsson skrifar: Spurning um pólitísk eftirmál