fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Eyjan

Ole Anton Bieltvedt skrifar: 60 prósent þjóðarinnar hent út í kuldann – 40 prósent baða sig í sólinni

Eyjan
Mánudaginn 8. apríl 2024 08:00

Ole Anton Bieltvedt.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það eru um 250.000 manns, fullorðnir, í þessu landi. Eftir því sem bezt verður séð eru um 150.000 þessa fólks, 60 prósent þjóðarinnar, sá hluti hennar, sem verr er settur og þarf lán til að fjármagna sitt líf, íbúðarkaup, bílakaup eða annað. Fjármagnsþurfar. Hinn hlutinn, um 100.000 manns, 40 prósent þjóðarinnar, er það fólk sem er betur sett, mest skuldlaust, á margt hvert peninga í banka. Fjármagnseigendur.

Hvernig virka stýrivaxtahækkanir á þessa þjóðfélagshópa?

Þegar Seðlabankinn hækkar stýrivexti og viðskiptabankarnir hækka vexti á lánum til almennings (þó þeir þurfi alls ekki að gera það, eins og ég sýndi fram á grein minni hér 1. apríl), bitnar það því af fullum þunga og alvarlegum afleiðingum á um 150.000 manns – líf, afkoma og velferð þessa fólks er sett í uppnám – á sama tíma og um 100.000 manns sleppa algjörlega við þetta vaxtahækkanafár. Standa ekki aðeins uppi fríir og frjálsir, með alla sína fjármuni ósnerta, í friðhelgi, heldur njóta þeir góðs af, því vextirnir á bankainnstæðum þeirra hækka með.

Þegar seðlabankastjóri veður áfram með sínar – fyrir mér – nánast stjórnlausu stýrivaxtahækkanir, þá er hann sem sagt að henda 60 prósentum þjóðarinnar út í kuldann, suma fáklædda í hörku frost, meðan hann býður hinum hlutanum, 40 prósentum, að baða sig í sólinni.

Hvernig má það vera að ríkisstjórn, Alþingi og aðrir ráðamenn landsins, láti þetta stórfellda og ljóta brot á jafnræði og réttlæti viðgangast!? Skilja þeir þetta ekki, eða er þeim bara sama!?

Hvernig virka stýrivaxtahækkanir á atvinnureksturinn í landinu?

Um 250 fyrirtækjum landsmanna, mikið þeim helztu og stærstu, leyfist að byggja sinn rekstur á evrum. Þessi fyrirtæki, en umfang þess reksturs, sem þau standa fyrir, er um 40 prósent af heildarrekstri í landinu, eru með sína skuldsetningu í lágvaxta evru-lánum. Það þýðir, aðvaxtasviptingar Seðlabanka fara fram hjá þessum fyrirtækjum. Þau standa frí og frjáls frá öllu þessu vaxtagjörræði. Ósnert.

Hin, um 60 prósent, verða hins vegar nauðug viljug að byggja sinn rekstur á íslenzku krónunni. Vaxtastormar Seðlabanka bitna því á þeim með fullum þunga.

Nú er það auðvitað svo að þessi 60 prósent eru minni og meðalstór fyrirtæki, sem minna mega sín en þau stóru. Þannig er Seðlabanki að lúberja þau fyrirtæki, og um leið atvinnuveitendur sem minna mega sín, en hinir, þeir sterku sem mest gætu borið, ganga frá borði ósnertir.

Standast vaxtahækkanir umsaminna og löngu veittra lána? 

Fyrir undirrituðum er hækkun vaxta, sérstaklega á löngu umsamin og tekin lán, grófleg og hrein eignaupptaka sem ætti ekki að viðgangast í neinu landi, sem vill kalla sig siðmenntað. Þar er í raun vegið aftan að fólki og fjármunir færðir, með valdi af þeim, sem minna eiga og standa verr, yfir á banka og fjármagnseigendur. Þeir ríku eru gerðir ríkari og þeir fátæku fátækari,

Í 72. grein stjórnarskrárinnar segir: „Eignarrétturinn er friðhelgur. Engan má skylda til að láta af hendi eign sína, nema almenningsþörf krefji. Þarf til þess lagafyrirmæli og komi fullt verð fyrir.“

Ég, og mér mætari menn, m.a. Nóbelsverðlaunahafi, telja að hér hafi alls ekki verið um „almenningsþörf“ að ræða og, jafnvel þó að svo hefði verið, þá er hér um varanlega eignarupptöku að ræða, þar sem „fullt verð“ kemur ekki fyrir.

Brot!

Leystu stýrivaxtahækkanirnar verðbólguvandann?

Sá verðhækkanavandi, sem hefur verið í gangi síðustu 2 árin, átti þessar rætur helzt:

  1. COVID-19 olli því að menn gátu ekki komið saman til venjulegra verka og þarfa. Framleiðsla fór úr böndunum, datt víða niður, flutningsmagn snarminnkaði, verð á vörum og flutningi hækkaði. Þetta gerðist mest erlendis, mikið í Asíu og svo í flutningi milli Asíu og Evrópu.

Þetta leiddi aftur til verulegar hækkunar á innfluttum varningi hér, en við, Íslendingar flytjum, eins og flestir vita, verulegan hluta af okkar þörfum inn.

Löguðu hækkaðir vextir á Íslandi þetta? NEI. Þeir gátu engin áhrif haft á þessa erlendu verðþróun! Hins vegar hækkuðu þeir verð enn frekar á innfluttum vörum, því innflytjendur verða að fjármagna sinn innflutning. Sem sagt, kolöfug áhrif.

  1. Fram að innrás Pútíns í Úkraínu höfðu margar þjóðir Vestur-Evrópu keypt stóran hluta sinna orkugjafa, olíu og gas, af Rússum. Eftir árásina kom því upp mikill skortur á orkugjöfum í Evrópu. Verð þeirra stórhækkaði. Allur rekstur, framleiðsla, verzlun og þjónusta þarf orku. Mikil hækkunaralda varð þannig til í Evrópu. Löguðu hækkaðir vextir á Íslandi þessa þróun og stöðu; orkuverð í Evrópu? NEI, auðvitað ekki.Hér líka eru þveröfug áhrif.
  2. Vegna ófullnægjandi lóðaframboðs hækkaði húsnæðisverð hér, en það hefur veruleg áhrif á framfærsluvísitölu/reiknaða verðbólgu. Jók hækkun vaxta framboð á lóðum? NEI, líka hér, þvert í móti.Háir vextir eru letjandi fyrir byggingarverktaka.

Vaxtahækkanir Seðlabanka virkuðu því ekki á nokkurn hátt til að draga úr verðhækkunaröldunni, heldur juku þær vandann. Voru olía á eldinn. 

Það er með ólíkindum, að Peningastefnunefnd, með Seðlabankastjóra í fararbroddi, skuli standa fyrir þeirri ósvinnu, sem vaxtahækkanir síðustu tveggja ára hafa mest verið. Reyndar var einn búinn að fá nóg og sagði af sér. Varaseðlabankastjóri. Fyrir mér, sá eini með fullu viti. Vonandi verður það fyrsta verk nýs forsætisráðherra að auglýsa stöðu Seðlabankastjóra!

Reyndar er evran eina rétta leiðin, ef tryggja á lágmarksvexti, það að ekki sé hægt að hrófla við, hvað þá hækka, umsamdar skuldir, og, ef fjárhagslegt jafnræði og stöðugleiki í peningamálum landsmanna á að nást.

Höfundur er samfélagsrýnir og dýraverndarsinni

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Hvað ætti forseti að gera?

Þorsteinn Pálsson skrifar: Hvað ætti forseti að gera?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Vilja gera Snæfellsjökul að forseta Íslands

Vilja gera Snæfellsjökul að forseta Íslands
Eyjan
Fyrir 1 viku

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður