

„Það hefur gerst, í sögu Viðreisnar, tvisvar sinnum hið minnsta að fólk sem hefur ætlað að taka sæti á listum Viðreisnar því hefur verið hótað að viðskiptum við það og þeirra fyrirtæki verði hætt.“ Þetta sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, í þættinum Spjallið með Frosta Logasyni á Brotkast.
Í viðtalinu ræðir hún ítarlega um mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu. Hún segir að Evrópusambandið sé ekki markmiðið heldur leið að markmiðinu að tryggja almannahagsmuni. „Í mínum huga er þetta mál fyrst og síðast almannahagsmunir umfram sérhagsmuni,“ segir hún. „Fólk verður að spyrja sig að því hverjir það eru sem reyna að koma í veg fyrir að við fáum að minnsta kosti að sjá samninginn.“
Á þeim tíu árum sem Viðreisn hefur verið starfandi hafi minnst tvisvar sinnum gerst að fólk hafi fengið hótanir taki það sæti á lista flokksins:
„Það hefur gerst. Ég vil ekki búa í þannig samfélagi,“ sagði hún.
„Þetta er eitthvað sem fær mann til að hugsa af hverju maður er í þessu og þá skiptir máli að vera frjáls og vera óháður. Vera ekki hræddur við að leggja áherslu á það sem maður trúir á og hefur hugsjónir fyrir, þó hitt kunni að vera þægilegra.“