fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Eyjan

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Ísrael er ekki í Evrópu

Eyjan
Þriðjudaginn 12. desember 2023 20:54

Ole Anton Bieltvedt.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ísrael liggur í Vestur Asíu, við botn Miðjarðarhafs, og eru nágrannaríkin Egyptaland, Jórdanía, Sýrland og Líbanon. Ísrael er þannig auðvitað ekki hluti af Evrópu, eða í Evrópu, heldur hinu megin við Miðjarðarhaf, sem aðskilur Vestur Asíu og Norður Afríku frá, einmitt, Evrópu.

Það vekur því nokkra undrun, að Ísrael er haft með í margvíslegum viðburðum, íþróttamótum og skemmtanahaldi, knattspyrnumótum og söngvakeppnum, sem eru kenndir við Evrópu og ættu eingöngu að vera fyrir evrópskar þjóðir.

Hví er Ísrael þar með, en ekki nefndar nágrannaþjóðir þeirra; Egyptaland, Jódanía, Sýrland og Líbanon?

Þessari spurningu má velta fyrir sér, en líklegt er, að sterk viðvera og mikil áhrif Gyðinga í Evrópu, og, reyndar, víða um heim, ekki sízt í Bandaríkjunum, hafi tryggt þeim þessa sérstöðu, þessi „forréttindi“, en Ísrael hefur aðeins notið takmarkaðrar vináttu við nágrannaríkin og varð því að leita lengra eftir samvinnu, félagsskap og vináttu á þessum sviðum.

Ísrael hefur lengi verið með í Eurovision, og hafa fulltrúar landsins meira að segja unnið keppnina 4 sinnum.

Nú er góð alþjóðleg regla sú að blanda sem minnst saman stjórnmálum, annars vegar, og íþróttum eða menningar- og skemmtanamálum, hins vegar. Á margan hátt eru einmitt þessi samskipti þau, sem halda alþjóðasamfélaginu saman. Þau eru því geysi þýðingarmikill.

Það eru þó mörk í öllum málum, og hefur bæði rússneskt íþróttafólk og listamenn orðið að sæta þátttökubanni, meira og minna, t.a.m. nú í Eurovision, vegna þess, að Pútín/Rússland hefur gert sig sekan um óforsvaranlegt, óréttlætanlegt og grimmilegt stríð gegn Úkraínu að mati alþjóðasamfélagsins og leiðandi manna á þessum sviðum í Evrópu. Þarna hafa verið mörkuð ákveðin siðferðismörk. Rauð lína.

Það er óumdeilanlegt að árás Hamas á Ísrael 7. október sl. var hryllileg, ómennsk og með öllu forkastanleg, þó að hún hafi ekki komið úr tómarúmi, eins og aðalritari Sameinuðu þjóðanna, António Guterres, benti á í ræðu fyrir Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna 24. október sl., og að Ísrael, eins og öll sjálfstæð og fullvalda ríki, hafi allan rétt til að verja sitt land og sitt fólk en gagnárásin, hefndin, virðist hafa farið yfir öll mennsk og siðferðisleg mörk. Alla vega er það mitt mat.

Gömul réttlætis- og refsiregla, sem hefur verið höfð í hávegum um aldir og árþúsund, m.a. sem hluti margra trúarbragða, og ég hef verið að vitna í, segir: „Auga-fyrir-auga-og-tönn-fyrir-tönn“. Þessi regla á að tryggja að refsing eða hefnd jafngildi broti eða sök, að þar sé jafnræði á milli. Þetta hefur verið talið réttlæti.

Gagnárás og refsing Ísraelshers hefur hins vegar frekar mátt kenna við reglu, sem héti „Tennur-fyrir-tönn-og-augu-fyrir-auga“, því þó að brotið hafi verið illt og heiftarlegt hefur refsingin, hefndin, verið margföld að umfangi og þunga. Tíföld í mannslífum, þar af mikill hluti börn, unglingar, konur og gamalmenni.

Þarna hefur grimmdin og ómennskan, tillitsleysi við lífi, limi og velferð annarra, gengið allt of langt, allar línur Sameinuðu þjóðanna og allra helztu mannúðar- og læknasamtaka heims, Rauða krossins og Rauða hálfmánans, svo og mótmæli og tilmæli flestra þjóðarleiðtoga og áhrifamanna, verið hunzaðar með öllu.

Í 15-þjóða Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, helztu þjóða heims, kröfðust 13 þeirra tafarlauss vopnahlés á dögunum, ein sat hjá og aðeins ein beitti neitunarvaldi, og svo hélt Ísraelsher því, sem ég vil kalla ódæði og þjóðarmorð, að fullu áfram eins og ekkert hefði í skorizt. Engin virðing ekki einu sinni við Sameinuðu þjóðirnar.

Fyrir mér hafa Ísraelsmenn líka farið langt yfir rauða línu, eins og Rússar, þó að með nokkuð öðrum hætti sé. Þeir eru heldur ekki Evrópubúar. Hver og einn, sem getur ekki sætt sig við eða unað blóðbaðinu sem þeir standa að á Gaza, verður að senda þeim sín skilaboð þar um með þeim hætti sem hann býr yfir.

Ég tek undir kröfu þeirra, sem fara fram á að fulltrúa Ísraels verði meinað að taka þátt í Eurovision, eða að Ísland dragi annars sína þátttöku til baka. Hér væri um skýr skilaboð til Ísraelsmanna að ræða, um það að við Íslendingar sættum okkur ekki þegjandi og hljóðalaust við barnamorð og rústun byggðar og innviða á Gaza. Kannske myndu aðrir taka undir, sem gæti magnað áhrif skilaboðanna, og væri það vel.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“