fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Eyjan

Elín segir Samherja stunda óttastjórnun – Skipulagðar ofsóknir og fólk þorir ekki að segja neitt

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 27. september 2022 13:15

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja. Mynd-samherji.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Stórútgerðarfyrirtækið Samherji fer fram með þeim hætti að það vekur margar óþægilegar spurningar. Fyrirtækið hefur sem kunnugt er sett á fót sérstaka skæruliðadeild til þess að reyna að koma óorði á þá sem hafa upplýst um tengsl þess við eitt stærsta spillingarmál sem upp hefur komið í Namibíu og þó víðar væri leitað.“

Svona hefst leiðari Fréttablaðsins í dag en hann ber fyrirsögnina „Óttastjórnun Samherja“ og er skrifaður af Elínu Hirst.

Eins og ljóst má vera af innganginum þá er það Samherji og mál tengd fyrirtækinu sem eru til umfjöllunar.

„En hér á landi beinist athyglin ekki að meintum stórafbrotum þar sem fyrirtækið er grunað um að hafa nýtt sér ágóða af þjóðarauðlind Íslendinga til að skara eld að eigin köku, á kostnað almennings í Namibíu. Á Íslandi snýst umræðan um eitthvað allt annað,“ segir hún og bendir á að hér á landi séu nokkrir blaðamenn með stöðu grunaðra í sakamáli sem snúist um byrlun og þjófnað á farsíma. Þetta sé einhverskonar smjörklípuafsprengi spillingarmálsins í Namibíu. Íslenska þjóðin hljóti að vera meðvituð um að það mál er til rannsóknar í Namibíu og hjá héraðssaksóknara hér á landi.

„Opinberlega hefur verið upplýst að Samherji heldur úti skipulögðum ofsóknum gagnvart uppljóstrurum og fjölmiðlamönnum sem hafa dirfst að benda á þau stórfelldu afbrot sem fyrirtækið er grunað um. Sjálfur fjármálaráðherra landsins gengur fram fyrir skjöldu og tekur þátt í umræðu um málið þar sem hann ver mjög þá ákvörðun að blaðamennirnir sem staðið hafa í stafni við að upplýsa um Samherjamálið skuli hafa fengið réttarstöðu grunaðra í málinu,“ segir Elín.

Hún bendir á að lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra liggi undir ámæli um að vera ekki faglegur í því sem hann er að gera í þessu máli, hann gangi erinda Samherja.

„Er Samherji virkilega orðinn svo stórt og valdamikið fyrirtæki að um það gildi önnur lögmál en annað athafnalíf í landinu? Í þeim byggðarlögum þar sem Samherji hefur tögl og hagldir segja kunnugir að fyrirtækið haldi umræðu og skoðanaskiptum í heljargreipum. Enginn þori að gagnrýna fyrirtækið því það gæti þýtt stöðu- og tekjumissi fyrir viðkomandi eða einhvern úr frændgarðinum. Fólk er óttaslegið og kýs að þegja,“ segir hún að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“