fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Eyjan

Ármann kveður bæjarstjórnarpólitíkina

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 17. janúar 2022 12:29

Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ármann Kr. Ólafsson, bæiarstjóri Kópavogs síðan 2012, hefur ákveðið að stíga til hliðar og gefa ekki kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir næstu bæjar- og sveitarstjórnarkosningar sem verða í vor. Ármann hefur helgað sig bæjarmálum í Kópavogi undanfarin 25 ár en hann var kjörinn bæjarfulltrúi árið 1998. Hann hefur sent frá sér eftirfarandi tilkynningu vegna málsins:

Á fundi kjörnefndar Sjálfstæðisfélagsins í Kópavog í gærkvöldi skýrði ég nefndinni frá því að ég myndi ekki sækjast eftir endurkjöri í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi þann 12. mars n.k. vegna komandi sveitarstjórnarkosninga. Síðustu 25 ár hef ég helgað mig bæjarmálunum í Kópavogi. Ég var kjörinn bæjarfulltrúi árið 1998 og hef verið bæjarstjóri frá árinu 2012 en ég tel nú tímabært að stíga til hliðar og að annar taki við keflinu.

Á þeim tíma sem ég hef starfað í bæjarmálunum hefur Kópavogur tekið miklum breytingum þar sem fjöldi íbúa í bænum hefur tvöfaldast og telur nú um 40.000 manns. Ég er stoltur af því að hafa starfað með Sjálfstæðisflokknum í gegnum þær umbreytingar sem hafa átt sér stað í Kópavogi og hafa leitt flokkinn síðustu 12 ár. Ég hef ávallt haft þá sýn að góður rekstur og ábyrg fjármálastjórn sé undirstaða blómlegs vaxtar bæjarfélagsins og er þeirrar skoðunar að það skýri þá sterku stöðu sem bærinn nýtur núna.

Á þeim tíma sem ég hef setið í bæjarstjórn Kópavogs hef ég kynnst og átt samleið með fjölda fólks. Vil ég nota þetta tækifæri og þakka Kópavogsbúum öllum, öflugu og góðu starfsfólki Kópavogsbæjar, Sjálfstæðisfólki í Kópavogi fyrir þeirra ómetanlega og óeigingjarna starf, pólitískum fulltrúum allra flokka í Kópavogi og á höfuðborgarsvæðinu og þeim fulltrúum fyrirtækja og félagasamtaka sem ég hef kynnst og unnið með í gegnum tíðina.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Í gær

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn
Eyjan
Í gær

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma
Eyjan
Fyrir 3 dögum

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Baldur með mesta fylgið samkvæmt nýrri könnun

Baldur með mesta fylgið samkvæmt nýrri könnun