fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
Eyjan

Katrín greindist ekki með smit

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 24. mars 2020 11:56

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Mér hafa borist þau ánægjulegu tíðindi að í sýni mínu væru engin merki um coronaveiru,“ segir Katrín jakobsdóttir, forsætisráðherra, í stöðufærslu á Facebook í dag. Í gær greindi hún frá því að hún hefði þurft að fara í sjálfskipaða sóttkví þar sem smit hefði greinst í skóla sonar hennar.

„Ég mun því halda ótrauð áfram í að vinna að því að við hér á Íslandi og samfélagið allt komumst vel í gegnum þennan skafl. Það er mér mikils virði að finna fyrir þeirri samvinnu og þeim samhug í samfélaginu öllu sem er mikilvægt að finna fyrir á svona skrýtnum tímum. Á laugardaginn kynnti ríkisstjórnin stærstu efnahagslegu aðgerðir í sögu landsins. 230 milljarða aðgerðarpakki til að spyrna við þessum fordæmalausu aðstæðum. Þær eru mikilvægar. Mikilvægast er að við gerum þetta saman. Að auki vil ég ég þakka ykkur öllum fyrir hlýjar kveðjur, mér þykir vænt um þær. Sendi ykkur sömuleiðis mínar allra bestu kveðjur. K“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Karl Ágúst Úlfsson: 110 þýðingar komnar – best að komast afsíðis

Karl Ágúst Úlfsson: 110 þýðingar komnar – best að komast afsíðis
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Jólatréð í Kokkedal

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Jólatréð í Kokkedal
Eyjan
Fyrir 1 viku

Karl Ágúst Úlfsson: Verst að tapa orðunum – spurði lækninn hvort hann kæmist ekki á skíði rétt eftir heilaaðgerð

Karl Ágúst Úlfsson: Verst að tapa orðunum – spurði lækninn hvort hann kæmist ekki á skíði rétt eftir heilaaðgerð
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Fellibylur í fingurbjörg – stjórnarandstaðan stígur í feitina og verður sér til minnkunar

Orðið á götunni: Fellibylur í fingurbjörg – stjórnarandstaðan stígur í feitina og verður sér til minnkunar