fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Eyjan

Hinsegin réttindi fá 13 milljónir frá Guðlaugi Þór

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 24. júní 2019 17:30

Ljósmynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hefur ákveðið að verja þrettán milljónum króna til UN Free & Equal, sérstaks verkefnis sem skrifstofa mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna (OHCHR) heldur utan um til að vinna að útbreiðslu réttinda hinsegin fólks (LGBTI) hvarvetna í heiminum. Framlagið er í samræmi við áherslur Íslands í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna en ráðið kemur til síns 41. reglulega fundar á morgun í Genf í Sviss.

Réttindi hinsegin fólks hafa verið meðal helstu áhersluþátta Íslands í mannréttindaráði SÞ en Ísland var fyrir réttu ári kjörið til setu í mannréttindaráðinu. Þannig bar til dæmis Ísland upp fleiri tilmæli en nokkuð annað ríki er snertu LGBTI-réttindi í allsherjarúttekt á stöðu mannréttindamála í fjórtán aðildarríkjum SÞ í maí sl. Auk þess er réttindum hinsegin fólks iðulega haldið til haga í málatilbúnaði Íslands í ræðum og yfirlýsingum.

„Hinsegin sambönd teljast enn glæpur í meira en þriðjungi ríkja heims. Með fjárframlaginu og áframhaldandi áherslu á réttindi hinsegin fólks í mannréttindaráðinu og þróunarsamvinnu leggjum við okkar lóð á vogarskálar í þeirri viðleitni að breyta þessu. Við kunnum að vera ólík, en öll eigum við að njóta sömu mannréttinda,“

segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.

Fjárframlagið er sömuleiðis í samræmi við nýja stefnu Íslands í þróunarsamvinnu fyrir árin 2019-2023, sem Alþingi samþykkti í maí sl., og nýrri skýrslu utanríkisráðuneytisins þar sem mörkuð er sú nálgun að allt starf Íslands í þróunarsamvinnu sé mannréttindamiðað. Ísland fylgist því sérstaklega grannt með stöðu mála hvað varðar réttindi hinsegin fólks í samstarfsríkjum og áhersluríkjum í þróunarsamvinnu.

Jafnréttismál eru efst á dagskrá í komandi fundarlotu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna. Sérstakur skýrslugjafi ráðsins um réttindi hinsegin fólks tekur þátt í umræðum og fyrir liggur ályktunartillaga um framlengingu starfsumboðs hans, en það þótti tíðindum sæta þegar embættið var sett á með ályktun frá mannréttindaráðinu árið 2016.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Arnar Þór íhugar að stofna nýjan stjórnmálaflokk

Arnar Þór íhugar að stofna nýjan stjórnmálaflokk
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Hvað segja Bretar nú um Brexit?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Hvað segja Bretar nú um Brexit?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Flugfélög: Icelandair stundvísast allra stærri flugfélaga í Evrópu

Flugfélög: Icelandair stundvísast allra stærri flugfélaga í Evrópu