Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Anna Kolbrún Árnadóttir.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fyrrverandi forsætisráðherra skipar fyrsta sæti á lista Miðflokksins í Norðausturkjördæmi í komandi kosningum. Sigmundur Davíð skipaði áður fyrsta sætið á lista Framsóknarflokksins í kjördæminu.
Anna Kolbrún Árnadóttir menntunarfræðingur skipar annað sæti listans og þriðja sætið skipar Þorgrímur Sigmundsson verktaki.
Listann í heild má sjá hér fyrir neðan:
M-listi Miðflokksins í Norðausturkjördæmi við alþingiskosningar 28. október 2017