
64% landsmanna eru jákvæð í garð erlendra ferðamanna. Karlar eru jákvæðari í garð erlendra ferðamanna en konur og eru íbúar höfuðborgarsvæðisins með jákvæðari í garð ferðamanna en þeir sem búa á landsbyggðunum. Framsóknarmenn skera sig úr þegar kemur að afstöðu til erlendra ferðamanna, en þeim mælist mun minni jákvæðni og meiri neikvæðni í garð ferðamanna en hjá öðrum hópum. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar könnunnar MMR.
Samkvæmt könnuninni hafa þeir sem eru jákvæðir í garð ferðamanna fækkað um fjögur prósentustig frá því í fyrra, úr tæpum 68% í 64%. Þeim sem eru neikvæðir í garð ferðamanna hefur líka fækkað, úr 11,5% í 10,5%. Fjórðungur segist hvorki jákvæður né neikvæður í garð ferðamanna og hefur þeim fjölgað um tæp fjögur prósentustig milli ára.
Tekjulægri minna jákvæðir
53% þeirra tekjulægstu eru jákvæð í garð ferðamanna en 78% þeirra tekjuhæstu. Stuðningmenn Samfylkingarinnar og stuðningsmenn Bjartrar framtíðar eru jákvæðastir í garð ferðamanna en Framsóknarmenn neikvæðastir. 89,1% stuðningsmanna Samfylkingarinnar og 86,2% stuðningsmanna Bjartrar framtíðar eru jákvæð í garð ferðamanna. 70% stuðningsmanna Pírata og Viðreisnar og 63% stuðningsmanna Vinstri-grænna og Sjálfstæðisflokksins eru jákvæðir í garð erlendra ferðamann. Framsóknarmenn skera sig að nokkur leyti úr en 47,6% þeirra eru jákvæðir í garð ferðamanna og er það eina skilgreiningin, eftir kyni, aldri, búsetu, tekjum og stjórnmálaskoðunum þar sem innan við helmingur segist jákvæður í garð ferðamanna. 22,7% Framsóknarmanna eru neikvæð í garð ferðamanna. Næst mesta neikvæðnin mælist í næst tekjulægsta hópnum þar sem 13,1% eru neikvæð í garð ferðamanna.
70,5% karla eru jákvæðir í garð ferðamanna en 57,5% kvenna. 67,5% íbúa höfuðborgarsvæðisins eru jákvæð í garð ferðamanna en 58% þeirra sem búa á landsbyggðinni.
Könnunin var gerð dagana 18. til 21. júlí 2017, var heildarfjöldi svarenda 909 einstaklingar, 18 ára og eldri.