

Frétt kvöldfrétta Stöðvar 2 í gær um fyrirhugaðan tíu milljarða króna niðurskurð á samgönguáætlun sem samþykkt var á Alþingi örfáum vikum fyrir þingkosningarnar í október sl. hefur vakið mikið uppnám. Ekki síst meðal margra íbúa landsbyggðarinnar.
Fjölmargar framkvæmdir sem beðið hefur verið eftir árum saman, og loks hillti undir að yrðu að veruleika, verða nú flautaðar af. Samgönguáætlun sem veifað var nýsamþykktri framan í kjósendur fyrir nokkrum vikum síðan reynist nú haldlítið plagg. Samfélagsmiðlar loga nú víða eftir fréttaflutning Stöðvar 2 og viðtal um vegatolla við Jón Gunnarsson nýjan samgönguráðherra.
Gunnar Bragi Sveinsson þingmaður Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi og fyrrum ráðherra í fyrri ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, og nú í stjórnarandstöðu er ekki par sáttur eftir yfirlýsingar Jóns Gunnarssonar. Hann situr í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis. Gunnar Bragi skrifað strax í gærkvöldi á Facebook:
Ég hef óskað eftir því að þingmenn kjördæmisins hittist hið fyrsta vegna þessa. Þá hef ég einnig óskað eftir því að ráðherra verði kallaður fyrir Umhverfis- og samgöngunefnd. Sjálfstæðisflokkurinn skuldar skýringar á þessu framferði ráðherrans.
Þá sagði Gunnar Bragi einnig: „Samgönguráðherra svíkur landsbyggðina“

Norðvesturkjördæmi fer illa út úr niðurskurðinum. Til að mynda verða Vestfirðir fyrir miklum skakkaföllum. Afnumin verður 1200 milljóna framkvæmd við Vestfjarðaveg um Gufudalssveit. Þar er umdeildur vegur um Teigsskóg. Sömuleiðis verða 400 milljónir sem áttu að fara í Dynjandisheiði strikaðar út. Einnig verða fjárveitingar til Uxahryggjavegar og Kjósarskarðsvegar flautaðar af. Þessar vegabætur áttu ekki síst að gagnast ferðaþjónustunni með betri tenginum milli suður- og norðvesturhluta landsins.
Strax í gærkvöldi urðu stjórnarþingmenn að mæta vonsviknum kjósendum og jafnvel eigin flokksfélögum. Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri í Vesturbyggð (Sjálfstæðisflokkur) skrifaði til að mynda á Facebook-vegg Haraldar Benediktssonar flokksbróður síns, alþingismanns Norðvesturkjördæmis og formanns fjárlaganefndar:
Þetta er svo yfirgengilegt. Fyrst þarf að berjast við opinberar stofnanir vegna veglagningarinnar um Teigskóg og svo loksins þegar það er u.þ.b að klárast þá þurfum við að berjast aftur fyrir fjárveitingu. Eigum við sum sé ekkert að fá þennan veg ágætu þingmenn? Er það raunin?
Haraldur Benediktsson svaraði Ásthildi:
Von að spurt sé Ásthildur. Vegurinn hefur verið árum saman undirbúningi. Það liggur ekki enn fyrir framkvæmdaleyfi. Það er varla hægt að svipta vegaframkvæmd fjármunum sem ekki hefur komist á framkvæmdastig. En við ætlum að slíkt leyfi fari að koma – þá hlýtur í rúmlega 20 milljarða málaflokki að vera til fjármagn til að byrja á vegi sem svo lengi hefur staðið til að ráðast í. Í haust voru það Dýrafjarðargöngin – núna Teigskógur. Þetta er alltaf sama sagan. Jón Gunnarsson er með ályktun alþingis sem kostar 9 milljörðum meira en hann hefur úr að spila. Það er þessi staða sem Jón er að reyna að brjótast úr – þegar hann vill skoða veggjöld. Það eru ekki ótakmarkaðir fjármunir – annan daginn er kallað á útgjöld til heilbrigðismála – þá menntamála og framvegis. Það er allavega ljóst að verður að hugsa þetta uppá nýtt.
Ofangreind dæmi úr Norðvesturkjördæmi eru aðeins smjörþefurinn af niðurskurðinum sem er afar blóðugur enda skal eins og fyrr sagði flauta af framkvæmdir fyrir tíu milljarða. Ekkert fer t. a. m. í nýja brú yfir Hornafjarðarfljót en þar var búið að heita einum milljarði í framkvæmdir. Vegabætur um Berufjörð eru einnig fyrir bí.