fbpx
Laugardagur 09.maí 2026
Eyjan

„Ég hefði aldrei trúað því að Samfylkingin ætti ekki þingmann á höfuðborgarsvæðinu – Það er með ólíkindum“

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 3. mars 2017 18:16

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristrún Heimisdóttir, Sigurður Hannesson og Björn Ingi Hrafnsson í Eyjunni á ÍNN.

Kristrún Heimisdóttir lögfræðingur og Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri eignastýringar hjá Kviku og stærðfræðingur voru gestir Björns Inga Hrafnssonar í Eyjunni á ÍNN. Kristrún ræddi ástandið í stjórnmálum hér á landi og aðstæður flokks hennar, Samfylkingarinnar. Hún sagði að ástæður fylgishruns flokksins væru aðallega tvær en það hefði komið sér í opna skjöldu að flokkurinn hefði ekki náði inn einum þingmanni á höfuðborgarsvæðinu.

Aðspurð um það hvort að þessi ríkisstjórn sem sitji nú sé fær um að geta gert stóra hluti segir Kristrún að erfitt sé að segja til um það.

Mér finnst ekki liggja ljóst fyrir að það sé ógjörningur, það er ekki mín skoðun. Stjórnmálin á Íslandi er ósköp lasin líka, það sem ég á við er það er hlutverk stjórnmála að geta leyst vandamál og geta leitt fram einhverja niðurstöðu.

Við getum tekið dæmi á borð við heilbrigðismálin. Við vitum hver afstaða þjóðarinnar er og ég vísa þar til stórrar undirskriftarsöfnunar um það og svo framvegis. Það er svo stjórnmálamanna að kunna að fara með mál í gegnum þingið og gera það sem þarf til að gera það framkvæmanlegt. Staðreyndin er sú að þessir miklu erfiðleikar við að mynda ríkisstjórn eru birtingarmynd á þessu sama vandamáli. Stjórnmálin virka illa.

Það sem mér þykir vera kjarninn í þessu máli er að það verða þessar miklu hremmingar hér á Íslandi og síðan þá hefur ekki verið sameiginleg framtíðarsýn. Það hefur ekki verið þessi grundvöllur til að ná sameiginlega einhverri sýn á stóru málin yfir það heila tekið. Það held ég að sé okkur erfitt og við verðum að reyna að komast áfram með slíkt.

Kristrún var lengi vel framámanneskja í Samfylkingunni. Sá flokkur hefur goldið afhroð í tveimur síðustu kosningum og hennar skýringar á því eru að innri átök og að ,,tapa niður þessu leiðarljósi sem var í upphafi, að virða skoðanir annarra og krefjast ekki hreinnar skoðunar á neinu, að fólk vandaði sig og vildi leggja að baki þessa sögulegu arfleið vinstri manna. Ekki síst Alþýðuflokksins og vinstri manna í heild sinni. Að leggja af það að vera sífellt að leita að svikurum í eigin hópi.‘‘

Samfylkingin vann sinn mesta kosningasigur í kjölfar hrunsins en síðan þá hefur hallað undan fæti:

Icesave málið, eins og það var meðhöndlað það vor, var stórkostlegt áfall fyrir flokkinn.

Ég hefði aldrei trúað því að Samfylkingin ætti ekki þingmann á höfuðborgarsvæðinu. Það er með ólíkindum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Flýr Ásdís Kristjánsdóttir Kópavog eins og Rósa Guðbjartsdóttir flúði úr bæjarstjórn Hafnarfjarðar?

Orðið á götunni: Flýr Ásdís Kristjánsdóttir Kópavog eins og Rósa Guðbjartsdóttir flúði úr bæjarstjórn Hafnarfjarðar?
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ragnar Þór Ingólfsson: Grímulaus sérhagsmunagæsla stjórnarandstöðunnar – trúnaðarupplýsingum deilt með hagsmunaaðilum

Ragnar Þór Ingólfsson: Grímulaus sérhagsmunagæsla stjórnarandstöðunnar – trúnaðarupplýsingum deilt með hagsmunaaðilum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Spyr hvers vegna SA og Viðskiptaráð hafi kúvent – „Ekki vegna heildarhagsmuna atvinnulífsins í landinu“

Spyr hvers vegna SA og Viðskiptaráð hafi kúvent – „Ekki vegna heildarhagsmuna atvinnulífsins í landinu“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Orsök kúvendingar í Húsi atvinnulífsins

Þorsteinn Pálsson skrifar: Orsök kúvendingar í Húsi atvinnulífsins