

Eigendur Brúneggja ehf. óska eftir því í dag að félagið yrði tekið til gjaldþrotameðferðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá eigendum félagsins. Kalla þeir umfjöllun Kastljóss „óvægna“ og að tilraunir félagsins til að rétta hlut sinn hafi ekki borið árangur. Það hafi blasið við að lífróður eigendanna myndi ekki duga til að halda fyrirtækinu gangandi nema í takmarkaðan tíma:
„Enginn atvinnurekstur þolir það að missa nær allar tekjur sínar svo að segja á einni nóttu en sitja eftir með tilheyrandi kostnað og útgjöld,“
segir í tilkynningunni. Þar segir ennfremur:
Öllu starfsfólki fyrirtækisins var sagt upp og þrátt fyrir að starfsstöðvar þess væru allar með fullt starfsleyfi frá Matvælastofnun var ákveðið að leggja niður starfsemi á Teigi og í Silfurhöll í Mosfellsbæ í janúar sl. Aðstæður í gömlu fuglahúsunum þar gerðu mönnum erfitt fyrir með að uppfylla viðmið um loftgæði sem kveðið er á um í reglugerð um dýravelferð frá 2015.
Í umfjöllun Kastljóss síðasta nóvember kom fram að aðbúnaður fugla í eigu fyrirtækisins hafi verið mjög slæmur og mikil heift blossaði upp í samfélaginu og hættu verslanir að selja egg frá Brúneggjum. Gagnrýnendur á borð við Ingva Hrafn Jónsson sögðu hins vegar að Kastljós hafi notað gamalt myndefni frá Matvælastofnun.
Í byrjun febrúar var greint frá því að eigendur Brúneggja væru að reyna að selja fyrirtækið og væri í viðræðum við áhugasama kaupendur. Þau kaup virðast ekki hafa gengið eftir og er nú búið að segja upp öllu starfsfólki Brúneggja:
Eigendur Brúneggja harma þá vankanta í starfseminni sem fundið hefur verið að á liðnum misserum en harma ekki síður að þessi verði endalok fyrirtækisins.