fbpx
Laugardagur 09.maí 2026
Eyjan

Ásta Guðrún hjólar í stjórnina: ,,Ætlar ríkisstjórnin að taka þögnina og aðgerðaleysið á þetta kjörtímabil‘‘

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 3. mars 2017 15:37

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ásta Guðrún Helgadóttir þingflokksformaður Pírata.

Ásta Guðrún Helgadóttir spyr hvort ríkisstjórnin ætli að læðast meðfram veggjum allt kjörtímabilið í stöðuuppfærslu á Facebook síðu sinni í dag. Ásta Guðrún er formaður þingflokks Pírata og þriðji þingmaður Reykjavíkur suður.

Sex vikur eru liðnar af þingi en ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar tók við stjórnartaumunum þann 11. janúar síðastliðinn. Að sögn Ástu hefur stjórnarandstaðan ,,haldið uppi þingstörfum‘‘ á þessu tímabili.

Aðeins hafa verið flutt fjögur frumvörp af hálfu ríkisstjórnarinnar og fjórar stjórnartillögur. Þingmenn ríkisstjórnarflokkanna hafa flutt fjögur frumvörp og meirihluti velferðarnefndar hefur lagt fram eitt frumvarp.

Á meðan hefur stjórnarandstaðan flutt hvorki meira né minna en 11 frumvörp og 16 þingsályktunartillögur að sögn Ástu frá því að ríkisstjórnin tók við.

Ætlar ríkisstjórnin að taka þögnina og aðgerðaleysið á þetta kjörtímabil, læðast meðfram veggjum og vonast til þess að enginn taki eftir henni?

spyr Ásta.

Í athugasemdum við færsluna birtir Ásta tölfræði yfir það hvernig þingmannamál ríkisstjórnarflokkanna skiptast eftir flokkum. Þingmenn eins flokks eru áberandi duglegari en hinna tveggja við að leggja fram mál á þingi, þingmenn Viðreisnar og Bjartrar framtíðar hafa ekki lagt fram nein slík mál en þingmenn Sjálfstæðisflokks fjögur.

Þegar kemur að stjórnartillögum og frumvörpum hefur ekkert slíkt komið frá Bjartri framtíð, þrjú frá Sjálfstæðisflokki og fimm frá Viðreisn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Flýr Ásdís Kristjánsdóttir Kópavog eins og Rósa Guðbjartsdóttir flúði úr bæjarstjórn Hafnarfjarðar?

Orðið á götunni: Flýr Ásdís Kristjánsdóttir Kópavog eins og Rósa Guðbjartsdóttir flúði úr bæjarstjórn Hafnarfjarðar?
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ragnar Þór Ingólfsson: Grímulaus sérhagsmunagæsla stjórnarandstöðunnar – trúnaðarupplýsingum deilt með hagsmunaaðilum

Ragnar Þór Ingólfsson: Grímulaus sérhagsmunagæsla stjórnarandstöðunnar – trúnaðarupplýsingum deilt með hagsmunaaðilum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Spyr hvers vegna SA og Viðskiptaráð hafi kúvent – „Ekki vegna heildarhagsmuna atvinnulífsins í landinu“

Spyr hvers vegna SA og Viðskiptaráð hafi kúvent – „Ekki vegna heildarhagsmuna atvinnulífsins í landinu“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Orsök kúvendingar í Húsi atvinnulífsins

Þorsteinn Pálsson skrifar: Orsök kúvendingar í Húsi atvinnulífsins