fbpx
Mánudagur 06.maí 2024
Eyjan

Seðlabankinn tilkynnir óbreytta stýrivexti: Hagvöxtur 6% í fyrra, vaxandi spenna í þjóðarbúinu

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 8. febrúar 2017 09:34

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 5%.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabankanum. Áætlað er að hagvöxtur hafi verið 6% í fyrra. Það er heilli prósentu meiri vöxtur en spáð var í nóvemberhefti Peningamála, sem skýrist einkum af meiri fjárfestingu atvinnuveganna og þjónustuútflutningi á fyrstu níu mánuðum ársins. Spáð er að hagvöxtur verði áfram ör, 5⅓% í ár og á bilinu 2½-3% á næstu tveimur árum. Störfum fjölgar hratt, atvinnuleysi er komið niður fyrir 3% og atvinnuþátttaka orðin meiri en hún var mest á þenslutímanum fyrir fjármálakreppuna. Þrátt fyrir að innflutningur erlends vinnuafls vegi á móti fer spenna í þjóðarbúinu vaxandi og verður meiri en áður var áætlað.

Verðbólguhorfurnar hafa batnað lítillega frá nóvemberspánni þrátt fyrir meiri spennu í þjóðarbúskapnum. Þær byggjast þó á þeirri forsendu að kjarasamningar á vinnumarkaði losni ekki á næstunni. Um það ríkir hins vegar töluverð óvissa. Á móti innlendum verðbólguþrýstingi vegur lítil alþjóðleg verðbólga, hækkun gengis krónunnar á spátímanum og aðhaldssöm peningastefna. Peningastefnan hefur skapað verðbólguvæntingum kjölfestu, haldið aftur af útlánavexti og stuðlað að meiri sparnaði en ella.

Gengi krónunnar hefur lækkað frá síðasta fundi nefndarinnar eftir hraða hækkun á seinni hluta síðasta árs. Skammtímasveiflur það sem af er ári hafa einnig verið nokkru meiri en síðustu tvö ár. Stefnt er að því að skammtímasveiflur verði minni á næstunni í samræmi við það markmið að draga úr sveiflum í gengi krónunnar. Viðskipti bankans á gjaldeyrismarkaði munu einnig markast af því að ekki er þörf fyrir frekari stækkun gjaldeyrisforða og að hætta á tímabundnu ofrisi krónunnar í aðdraganda losunar fjármagnshafta hefur minnkað eftir að stór skref voru stigin nýlega.

Ör vöxtur efnahagsumsvifa og skýr merki um vaxandi spennu í þjóðarbúskapnum kalla á peningalegt aðhald svo að tryggja megi verðstöðugleika til meðallangs tíma. Traustari kjölfesta verðbólguvæntinga við verðbólgumarkmiðið og hækkun gengis krónunnar hafa hins vegar gert peningastefnunefnd mögulegt að ná lögboðnu markmiði um verðstöðugleika við lægra vaxtastig en ella. Kröftugur vöxtur eftirspurnar og órói á vinnumarkaði kalla á varkárni við ákvörðun vaxta. Aðhaldsstig peningastefnunnar á komandi misserum mun ráðast af framvindu efnahagsmála og annarri hagstjórn, segir í greinargerð Peningastefnunefndar Seðlabankans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Tómasdóttir – fólkið velur forsetann, ekki fjölmiðlar eða skoðanakannanir

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Tómasdóttir – fólkið velur forsetann, ekki fjölmiðlar eða skoðanakannanir
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Atli Þór ráðinn til Pírata

Atli Þór ráðinn til Pírata
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Kristrún greinir frá breytingum í reglum um framboðslista flokksins – Möguleiki á prófkjöri um efsta sæti og uppstillingu á þau næstu

Kristrún greinir frá breytingum í reglum um framboðslista flokksins – Möguleiki á prófkjöri um efsta sæti og uppstillingu á þau næstu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Tómasdóttir í hljóði og mynd

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Tómasdóttir í hljóði og mynd
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Biden grínaðist með aldursumræðuna um forsetaframbjóðendurna – „Ég er í framboði gegn sex ára“

Biden grínaðist með aldursumræðuna um forsetaframbjóðendurna – „Ég er í framboði gegn sex ára“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Forsetaefni íhaldsmanna?

Björn Jón skrifar: Forsetaefni íhaldsmanna?