fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
Fréttir

Ber saman listaverkið sem Davíð sló eign sinni á og Banksy-verkið sem Jón Gnarr var skammaður fyrir

Ritstjórn DV
Mánudaginn 3. mars 2025 11:27

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Forlátur sovéskur samóvar seldist fyrir eina og hálfa milljón í uppboði á landsfundi Sjálfstæðismanna um helgina. Samband ungra sjálfstæðismanna stóð að uppboðinu en Davíð Oddsson lagði samóvarinn til úr sínu persónulega safni. Dýrgripinn fékk Davíð að gjöf frá Mikhaíl Gorbatsjov, fyrrum leiðtogi Sovíetríkjanna þegar Sovétleiðtoginn átti sögulegan fund með Ronald Reagan, þáverandi Bandaríkjaforseta, í Höfða árið 1986.

En átti gripurinn að enda í fórum Davíðs eða hefði verið við hæfi að samóvarinn. sem notaður er til að sjóða vatn til tedrykkju, myndi enda í eigu Reykjavíkurborgar. Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason ber málið saman við fjaðrafokið sem varð vegna Banksy-eftirprentunar sem Jón Gnarr fékk þegar hann sat í stóli borgarstjóra og ætlaði að taka heim með sér eftir að valdatíð hans lauk..

Fargaði verkinu eftir mikinn storm

Umræddur stormur geisaði í nóvember 2018. Þá kom í ljós að Jón hafði tekið verkið heim til sín og í kjölfarið gaus upp mikil gagnrýnisalda. Tilurð verksins var sú að Jón hafði sjálfur falast eftir verki frá listamanninum heimsfræga og í gegnum þriðja aðila barst honum tölvupóstur með mynd í viðhengi og skilaboð um að hann mætti gjarnan prenta verkið út. Það gerði Jón og kom því fyrir á skrifstofu borgarstjóra á meðan hann gegndi embætti.

Hann tók svo verkið með sér heim eftir að hafa lokið störfum sem borgarstjóri. Eins og áður segir varð allt vitlaust vegna málsins á sínum tíma og endaði Jón með að farga verkinu til að lægja öldurnar enda benti hann á að engin verðmæti væru í slíku eftirprenti. Nokkru síðar úrskurðaði borgarlögmaður að Jón hefði verið í fullum rétti að taka verkið með sér.

Picasso-verkið sem Vigdís fékk í eigu íslensku þjóðarinnar

En mátti Davíð hirða samóvarinn verðmæta? Talsverða umræður skapast um það undir færslu fjölmiðlamannsins og er bent á, Davíð til varnar, að reglur um slíkar gjafir hafi mögulega ekki verið eins fastmótaðar og er í dag en þar myndi slíkt verk alltaf vera í eigu ríkis eða sveitarfélags.

Annar netverji bendir á að umrætt dæmi sýni mun á siðferði leiðtoga. Þannig hafi Vigdís Finnbogadóttir fengið listaverk eftir Pablo Picasso að gjöf frá ekkju meistarans þegar hún gegndi embætti forseta Íslands. Það verk er nú í eigu íslensku þjóðarinnar og er til sýnis í Listasafni Íslands.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hvað var hinn 17 ára Tommy að gera á Íslandi? – Íris leitar aðstoðar Íslendinga vegna 60 ára gamals mannsláts

Hvað var hinn 17 ára Tommy að gera á Íslandi? – Íris leitar aðstoðar Íslendinga vegna 60 ára gamals mannsláts
Fréttir
Í gær

Ræstitækni ehf. dæmd til að greiða Andreinu miskabætur – Mörgum ásökunum hafnað

Ræstitækni ehf. dæmd til að greiða Andreinu miskabætur – Mörgum ásökunum hafnað
Fréttir
Í gær

Niðurstöður kosningaprófs Viðskiptaráðs – Þetta eru málin sem njóta mests stuðnings

Niðurstöður kosningaprófs Viðskiptaráðs – Þetta eru málin sem njóta mests stuðnings
Fréttir
Í gær

Sverrir Helgason flutti ræðu hjá Miðflokksmönnum – Hefur kallað regnbogafánann „alnæmisfánann“

Sverrir Helgason flutti ræðu hjá Miðflokksmönnum – Hefur kallað regnbogafánann „alnæmisfánann“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Segir frétt Morgunblaðsins sýna að hún hafi reynt að koma í veg fyrir Græna gímaldið- „Hafði ég í raun ekkert formlegt umboð til að hlutast til um málið“

Segir frétt Morgunblaðsins sýna að hún hafi reynt að koma í veg fyrir Græna gímaldið- „Hafði ég í raun ekkert formlegt umboð til að hlutast til um málið“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lofar Kristrúnu en getur ekki kosið Samfylkinguna í Reykjavík – „Stefna hans eyðilagt allt sem ég vildi að gert væri“

Lofar Kristrúnu en getur ekki kosið Samfylkinguna í Reykjavík – „Stefna hans eyðilagt allt sem ég vildi að gert væri“