fbpx
Sunnudagur 08.júní 2025
Fókus

FLOTT vinnur Jólalagakeppni Rásar 2 – Gefa gömlu lagi nýjan boðskap

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 12. desember 2024 16:18

Ragnhildur Veigarsdóttir meðlimur í hljómsveitinni FLOTT í hljóðveri Rásar 2. Mynd: Ragnar Visage

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er hljómsveitin FLOTT sem bar sigur úr býtum í Jólalagakeppni Rásar 2 þetta árið með lagið Ó, Grýla taktu þér tak. Lagið er samið af Ragnhildi Veigarsdóttur og Vigdísi Hafliðadóttur og er vísun í jólalagið Ó, Grýla sem Ómar Ragnarsson gerði frægt á sínum tíma. Lagið er ákall til Grýlu með von um að hún breyti viðhorfi sínu til barna.

Ragnhildur tók við verðlaununum í beinni útsendingu í Popplandi á Rás 2 og ræddi aðeins við Lovísu Rut Kristjánsdóttur og Sigurð Þorra Gunnarsson um tilkomu lagsins. „Þetta er alveg ótrúlega skemmtilegt. Ég var eiginlega komin í jólagírinn í ágúst þegar við byrjuðum að semja þetta lag,“ segir Ragnhildur.

Í þriðja sæti var svo lagið Blankur um jólin með ÞESAL og í öðru sæti var Kjalar með lagið Stúfur.

Ragnhildur segist hafa búið til undirspilið fyrir að verða tveimur árum og þá hafi Vigdís fengið þá hugmynd að nota það í jólalag sem hún vildi að fjallaði um Grýlu sjálfa. „Lag sem stendur með börnunum, segir henni að hætta að borða lög – sem er kannski hægt að túlka á mismunandi hátt í samfélaginu í dag,“ segir Ragnhildur.

Ó, Grýla taktu þér tak er fyrsta jólalagið sem FLOTT sendir frá sér en Vigdís gaf einnig út jólalagið Hleyptu ljósi inn með Vilhelm Netó á dögunum. „Ég mæli mikið að allir kíki á það líka,“ segir Ragnhildur. „Hún hélt aðeins framhjá okkur.“ Það er ábreiða af gömlu lagi en Ó, Grýla taktu þér tak er frumsamið.

Lagið hefur þó fengið nýjan boðskap og segist Ragnhildur vona að það falli vel í kramið hjá krökkunum. „Við vorum að reyna miða við börnin en líka hafa þetta þannig að fullorðið fólk myndi líka vilja hlusta.“

FLOTT munu flytja lagið í beinni útsendingu á RÚV í þættinum Vikan með Gísla Marteini annað kvöld. „Við erum mjög spenntar fyrir því,“ segir Ragnhildur. Það verði þó að koma í ljós hvort Grýla láti sjá sig líka.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Hrósa hvort öðru á rauða dreglinum – Sögusagnir um ástarsamband fá byr undir báða vængi

Hrósa hvort öðru á rauða dreglinum – Sögusagnir um ástarsamband fá byr undir báða vængi
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ástæða þess að Justin Bieber fengi helminginn af milljarða samningi eiginkonunnar ef þau skilja

Ástæða þess að Justin Bieber fengi helminginn af milljarða samningi eiginkonunnar ef þau skilja
Fókus
Fyrir 3 dögum

Stórleikarinn óþekkjanlegur við tökur – Deilur á tökustað vegna níðs og nektar

Stórleikarinn óþekkjanlegur við tökur – Deilur á tökustað vegna níðs og nektar
Fókus
Fyrir 3 dögum

Diddy sagður hafa greitt öryggisverði milljónir svo myndbandið færi aldrei í dreifingu

Diddy sagður hafa greitt öryggisverði milljónir svo myndbandið færi aldrei í dreifingu
Fókus
Fyrir 4 dögum

FM95Blö rýfur þögnina – „Þetta eru búnir að vera skrítnir dagar“

FM95Blö rýfur þögnina – „Þetta eru búnir að vera skrítnir dagar“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Bergur veit aldrei hvað vinnudagurinn færir – ,,Þegar fólk hringir á sjúkrabíl er það yfirleitt ekki venjulegur dagur og fólk oft í miklu uppnámi”

Bergur veit aldrei hvað vinnudagurinn færir – ,,Þegar fólk hringir á sjúkrabíl er það yfirleitt ekki venjulegur dagur og fólk oft í miklu uppnámi”