fbpx
Sunnudagur 14.desember 2025
433Sport

Daníel Hafsteins og Sveinn Margeir í Víking

Victor Pálsson
Sunnudaginn 1. desember 2024 18:30

Daníel Hafsteinsson. Mynd: KA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Daníel Hafsteinsson er genginn í raðir Víkings en hann kemur til félagsins eftir dvöl hjá HK.

Frá þessu greinir Víkingur á samskiptamiðlum í kvöld en Daníel hefur verið orðaður við þónokkur lið undanfarið.

Daníel var einn besti ef ekki besti leikmaður KA í sumar en hann er 25 ára gamall og spilar á miðjunni.

Víkingar fengu annan leikmann á sama tíma en Sveinn Margeir Hauksson hefur einnig gert samning við félagið.

Sveinn er 23 ára gamall og spilaði einnig með KA en hann rifti samningi sínum við bikarmeistarana eftir tímabilið.

,,Báðir eru þeir gríðarlega spennandi leikmenn. Daníel getur spilað meira eða minna allar stöður miðsvæðis á vellinum,“ segir Kári Árnason, yfirmaður knattspyrnumála Víkings.

,,Sveinn Margeir er gríðarlega kraftmikill leikmaður sem getur spilað allar framliggjandi stöður. Það skiptir okkur miklu máli að fá ákveðna tegund af leikmönnum í Víkina og báðir passa þeir fullkomlega inn í þá hugmyndafræði sem við vinnum eftir hér í Hamingjunni.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Salah snýr aftur

Salah snýr aftur
433Sport
Í gær

Hvetur Salah til að ræða við Messi um lífið og tilveruna í Bandaríkjunum

Hvetur Salah til að ræða við Messi um lífið og tilveruna í Bandaríkjunum
433Sport
Í gær

Mikil reiði í garð FIFA vegna miðaverðs á HM – Kalla eftir breytingu

Mikil reiði í garð FIFA vegna miðaverðs á HM – Kalla eftir breytingu
433Sport
Í gær

Telur að Salah hafi spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool

Telur að Salah hafi spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool