fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
Fókus

Jólalag Klöru verður einkennislag pakkasöfnunar í ár

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 20. nóvember 2024 15:59

Klara Einarsdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tónlistarkonan Klara Einars verður andlit og talsmaður Pakkasöfnunar Kringlunnar í ár. Jólalag Klöru, Handa þér, kemur út á streymisveitum, föstudaginn 22. Nóvember og verður lagið einkennislag söfnunarinnar í ár. Markmiðið er að safna gjöfum fyrir börn og fjölskyldur sem búa við erfiðar aðstæður og gætu átt erfitt með að halda gleðileg jól. Klara og Kringlan vilja með þessu samstarfi hvetja fyrirtæki og einstaklinga til að leggja sitt af mörkum.

„Klara kom til okkar ásamt höfundi lagsins og þau vildu gefa söfnuninni afnot af laginu og upptökunni í átak til að vekja athygli á söfnuninni okkar sem hefur í áratugi veitt gleði inn í líf svo margra,” segir Baldvina Snælaugsdóttir markaðstjóri Kringlunnar. „Við tókum þessu frumkvæði hennar fagnandi og hlökkum mikið til þess að vinna með henni í þessu verkefni.” 

Pakkasöfnunin sjálf hefst laugardaginn 30. nóvember og eru allir sem tök hafa á hvattir til að heimsækja Kringluna, kaupa eina aukagjöf og setja undir jólatréð fallega.  Allar gjafir fara til hjálparstofnana sem úthluta til fjölskyldna á Íslandi.

Allt á fullu eftir vælið

Klara hefur sent frá sér nokkur lög á árinu bæði undir eigin nafni og í samstarfi við tvíeykið Hubba Bubba sem vakið hafa athygli. Klara vann söngvakeppni Verzlunarskóla Íslands í fyrra og í framhaldinu tók hún endurgerðina af Handa þér.  Ingimar Birnir Tryggvason stjórnaði upptökunni, en lagið er upprunalega með Gunnari Óla og Einari Ágústi úr Skítamóral og er löngu orðið jólaklassík.

Hlakkar til jólanna

Lagið komst í spilun á útvarpsstöðvum í fyrra og náði miklum vinsældum en er núna að koma á Spotify rétt í tæka tíð fyrir jólahasarinn.

„Ég hlakka mikið til að vinna með Kringlunni að pakkasöfnuninni. Það hefur alltaf verið markmið mitt að nýta tónlistina til að láta gott af mér leiða,” segir Klara spurð út í samstarfið við Kringluna. „Laginu var vel tekið í útvarpi í fyrra og ég hlakka til að sjá viðbrögðin við því núna þegar það kemur á Spotify og verkefnið okkar með Pakkasöfnunina fer í gang.” 

Það er nóg að gera hjá Klöru sem er 18 ára gömul. Hún er á lokaári í Verzlunarskóla Íslands og mun útskrifast næsta vor. Fyrir jólin mun hún einnig syngja á jólahlaðborði Hótel Borg sem hefst næstu helgi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Þráir að komast í kuldann á Íslandi – „Ég hata hita“

Þráir að komast í kuldann á Íslandi – „Ég hata hita“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Lögreglan í Miami kærir stórleikarana fyrir meiðyrði vegna Netflix-myndar

Lögreglan í Miami kærir stórleikarana fyrir meiðyrði vegna Netflix-myndar
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sunneva og Birta fengu sér Manhattan á Manhattan – Sjáðu hvernig til tókst

Sunneva og Birta fengu sér Manhattan á Manhattan – Sjáðu hvernig til tókst
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég vildi ekki verða bara stelpan sem missti pabba sinn“

„Ég vildi ekki verða bara stelpan sem missti pabba sinn“