fbpx
Þriðjudagur 21.apríl 2026
Fréttir

Árásin á íslensku fjölskylduna á Krít tilefnislaus – Fjölskyldufaðirinn þarf að fara í aðgerð en einn árásarmaðurinn fundinn

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 18. júlí 2024 12:30

Íslenska konan og kanadísk-grískur eiginmaður hennar eru í áfalli eftir árásina.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Að sögn íslensku fjölskyldunnar sem ráðist var á á Krít var árásin tilefnislaus. Kennsl hafa verið borin á tvo árásarmennina af fjórum og einn þeirra handsamaður.

Eins og DV greindi frá í gær var ráðist á íslenska fjölskyldu á bar í borginni Heraklion á þriðjudag og hún flutt á sjúkrahús. Það er íslenska konu á fimmtugsaldri, kanadísk-grískan eiginmann hennar og tvo uppkomna syni. Fjórtán ára dóttir þeirra var einnig viðstödd. Árásarmennirnir voru fjórir Grikkir.

Málið hefur valdið miklum usla í Grikklandi og Olga Kefalogianni hefur látið sig málið varða, enda þykir það mikið álitshnekkir fyrir landið sem ferðamannalands.

Fjölskyldufaðirinn, sem er 49 ára gamall, fékk mestu áverkana og er enn þá á á spítala, eins og kemur fram í frétt Larissanet um málið. Áverkarnir eru slíkir að hann mun sennilega þurfa að fara í aðra aðgerð og dvelja lengur á spítalanum.

Ofsafengin og tilhæfulaus árás

Í yfirlýsingu til fjölmiðla sögðust fjölskyldumeðlimirnir vera í áfalli eftir hina alvarlegu árás. Þau elskuðu Krít og kæmu til eyjunnar að minnsta kosti tvisvar á ári og fjölskyldufaðirinn ætti þar ættingja. Árásin hafi verið ofsafengin og tilhæfulaus.

Atvikið hafi hafist þegar fjölskyldan var að gera sig klára til að yfirgefa barinn. Þrjú þeirra voru farin út en fjölskyldufaðirinn og annar sonurinn fóru að barborðinu til þess að borga reikninginn. Þegar þeir ætluðu út hafi einn Grikki rekið logandi sígarettu í bakið á föðurnum, sem horfði á hann til að virða hann fyrir sér. Ekki á ógnandi hátt þó.

Sjá einnig:

Ráðist á íslenska konu og fjölskyldu hennar á bar á Krít – Fjögur flutt á spítala

Þetta hafi Grikkirnir tekið nærri sér og réðust þeir á feðgana sem og aðra fjölskyldumeðlimi sem komu og reyndu að stoppa árásina. Þegar lögregla og sjúkrabíll kom á staðinn forðuðu mennirnir sér. Þá var fjölskyldan illa farin og gangstéttin blóði drifin.

Einn fundinn en þriggja enn leitað

Farið var með þau á spítala og ættingjar föðurins, sem búa á eyjunni komu til að aðgæta með hann og sýna fjölskyldunni stuðning.

Ferðamálastofnun Grikklands hefur haft samband við fjölskylduna, sem og ferðamálaráðherrann. En grísk stjórnvöld hafa áhyggjur af því hvaða áhrif málið kunni að hafa á ferðamannaiðnaðinn á eyjunni.

Fjölskyldan gat borið kennsl á suma árásarmennina á myndum sem lögreglan sýndi þeim. Einn þeirra er 31 árs og annar 32 ára. Hinn yngri er fundinn en lögregla leitar enn þá hins, sem og þeirra tveggja sem enn þá á eftir að bera kennsl á. Mennirnir eru góðkunningjar lögreglunnar.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Segir heilt hverfi borgarinnar búa í óvissu – „Meiri þrengsli, lengri ferðatíma og endalausar tafir“

Segir heilt hverfi borgarinnar búa í óvissu – „Meiri þrengsli, lengri ferðatíma og endalausar tafir“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

María nýr sjálfbærnistjóri Póstsins

María nýr sjálfbærnistjóri Póstsins
Fréttir
Í gær

Sakfelldur fyrir hatursorðræðu eftir kæru frá Solaris – „Þarf að fara endurvekja þýsku sturturnar aftur á þetta helvítis pakk“

Sakfelldur fyrir hatursorðræðu eftir kæru frá Solaris – „Þarf að fara endurvekja þýsku sturturnar aftur á þetta helvítis pakk“
Fréttir
Í gær

Vill fá að vita hvað Ölmu finnst um brottreksturinn – „Ekki einn um að hafa áhyggjur af þessari grafalvarlegu stöðu“

Vill fá að vita hvað Ölmu finnst um brottreksturinn – „Ekki einn um að hafa áhyggjur af þessari grafalvarlegu stöðu“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“