

Árlegt jólakort hjónanna Vilhjálms og Katrínar, krónprins og prinsessu af Wales, með börnum þeirra var birt opinberlega í gær. Myndin er tekin af ljósmyndaranum Josh Shinner í stúdíói og á myndinni eru hjónin ásamt börnunum, Georg, tíu ára, Karlottu, átta ára og Lúðvík fimm ára.
Myndin er svarthvít ólíkt fyrri jólakortum. Netverjar hafa hins vegar þegar rekið augun í nokkur atriði og gert athugasemdir við myndvinnsluna. Löngutöng vantar á Lúðvík prins og talið er að hún hafi einfaldlega verið klippt óvart út í myndvinnslunni. Einnig má sjá að svo virðist sem vanti vinstri fótinn á bæði Vilhjálm og Katrínu.

Margir hafa einfaldlega bent á að myndin sé hreinlega illa unnin eða „photo-shoppuð„. „Þetta er falleg fjölskyldumynd, en um leið og ég horfði á hana þá sá ég hendina á Lúðvíki. Það vantar á hann fingur.“

Það er þó óþarfi að hafa áhyggjur, staðfest er að allir fjölskyldumeðlimir eru enn með alla útlimi og konunglegur heimildamaður segir ekki vanta fingur á Lúðvík, hann hafi einfaldlega beygt fingurinn.
Myndin hefur fallið í kramið hjá aðdáendum konungsfjölskyldunnar, margir hafa nefnt hvað börnin eru prúð og orðin stór. Lúðvík prins er vanur að vera með ýmsa skemmtilega takta, en er stilltur og prúður á jólamyndinni. „Ég geri ráð fyrir að hönd föðurs hans á öxl Lúðvíks sé til að koma í veg fyrir að hann hlaupi í burtu. Elska þennan prakkarastrák,“ segir einn netverju. Georg er orðinn ansi hávaxinn að mati netverja og þykir mörgum Karlotta vera lifandi eftirmynd langömmu sinnar, Elísabetu drottningu heitinnar. Er nefnt að hún verði næsta stjarna fjölskyldunar og geisli af sjálfsöryggi og virðingu.