fbpx
Föstudagur 12.júní 2026
433Sport

Rooney biðlar til United að taka ákvörðun sem allra fyrst

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 11. maí 2026 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Wayne Rooney telur að Manchester United verði að ganga hratt frá ráðningu framtíðarstjóra félagsins ef liðið ætlar sér að styrkja hópinn fyrir næsta tímabil. Rooney óttast að óvissa á stjórastólnum geti haft neikvæð áhrif á möguleika félagsins á leikmannamarkaðnum í sumar.

United rak Ruben Amorim í janúar og síðan þá hefur Michael Carrick stýrt liðinu til bráðabirgða. Carrick hefur náð góðum árangri með liðið og tryggt því sæti í Meistaradeild Evrópu á ný, sem hefur aukið stuðning við að hann verði ráðinn til frambúðar.

Félagið hyggst fara í stórar breytingar í sumar og samkvæmt enskum miðlum gæti allt að 150 milljónum punda verið varið í að styrkja miðjuna. Rooney segir þó mikilvægt að leikmenn viti hver muni stjórna liðinu áður en þeir ákveða að ganga til liðs við félagið.

„Ef Manchester United vildi kaupa mig væri fyrsta spurningin mín hver stjórinn væri og hvort hann vildi fá mig,“ sagði Rooney í Match of the Day.

Rooney vill sjá Carrick fá starfið til frambúðar sem fyrst svo félagið geti hafið undirbúning fyrir næsta tímabil af fullum krafti. Carrick sjálfur segir umræðuna ekki hafa áhrif á sig og að hann einbeiti sér eingöngu að vinnunni með liðinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

United í leit að markverði

United í leit að markverði
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Gæti óvænt farið frá Tottenham

Gæti óvænt farið frá Tottenham
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum
Má fara frá Liverpool
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Netverjar reiðir eftir að hafa séð verðið á mat og drykk – Þetta kostar kringla og bjór

Netverjar reiðir eftir að hafa séð verðið á mat og drykk – Þetta kostar kringla og bjór
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

United með tvo kosti sem mögulega vinstri bakverði

United með tvo kosti sem mögulega vinstri bakverði
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Fékk skammir frá mömmu sinni eftir að hafa verið sólbrenndur á myndum

Fékk skammir frá mömmu sinni eftir að hafa verið sólbrenndur á myndum