fbpx
Fimmtudagur 18.september 2025
Fréttir

„Ofbeldi meðal þeirra sem neyta áfengis og eða vímuefna hefur harðnað“

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 30. nóvember 2023 12:45

Mynd úr safni og tengist fréttinni ekki beint Mynd: Shutterstock

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ofbeldi á aldrei rétt á sér. Ofbeldi hefur aukist á Íslandi. Um er að ræða allar tegundir ofbeldis, heimilisofbeldi, kynferðisofbeldi, andlegt ofbeldi og stafrænt ofbeldi svo eitthvað sé nefnt. Ofbeldi á sér ótal myndir og ekki alltaf sem þolendur átta sig á því að þeir búa við ofbeldi,“ segir Kristín Snorradóttir teymisstjóri Bjarmahlíðar í aðsendri grein.

„Ofbeldi meðal þeirra sem neyta áfengis og eða vímuefna hefur harðnað og þeir sem eiga við vímuefnafíkn að etja verða frekar þolendur ofbeldis, sem og gerendur. Það er vissulega áhyggjuefni að þegar einstaklingar hafa lokið vímuefnameðferð eiga þeir eftir að vinna úr ofbeldinu, hvort sem þeir eru þolendur eða gerendur. Það er því samfélagslega hagkvæmt að mæta þolendum ofbeldis og vímuefnaneytendum. 

Á síðustu árum má sjá hvernig ofbeldi hefur stigmagnast og hefur leitt til manndráps í einhverjum tilfellum. Glögglega má sjá á fréttaflutningi vegna þannig mála að svo sé og einnig má nefna að vopnaburður hefur aukist. 

Kristín Snorradóttir
Mynd: Aðsend

Er þörf fyrir úrræði eins og Bjarmahlíð á Akureyri? 

Já, svo sannarlega er þörf fyrir skilvirk úrræði fyrir þolendur ofbeldis af hvaða tagi sem er og hjá Bjarmahlíð hefur þeim fjölgað sem leita þangað eftir hjálp. Það ber að fagna því að fólk leitar sér aðstoðar og að öllum er gert kleift að fá hjálp þeim að kostnaðarlausu. Bjarmahlíð er miðstöð fyrir þolendur ofbeldis og býður upp á ráðgjöf, aðstoð og upplýsingar fyrir fólk sem beitt hefur verið ofbeldi. 

Bjarmahlíð er staðsett á Akureyri og þjónustar allt Norður-og Austurland, auk þess sem Bjarmahlíð hefur lagt suðvesturhorninu lið vegna mikilla biðlista þar. Í Bjarmahlíð eru allir þolendur velkomnir og fá þjónustu við hæfi, byrjað er á því að greina hvað hver einstaklingur þarfnast og lögð áhersla á að beina þolendum í þá þjónustu sem hæfir hverjum og einum. 

Bjarmahlíð vinnur með þolendum ofbeldis á þeirra forsendum. Þjónustan er einstaklingsmiðuð þar sem virðing er borin fyrir reynslu hvers og eins enda er hún margs konar. Sem dæmi er ekki óalgengt að þolandi ofbeldis leiti í sjálfsásökun, skömm og niðurrif. Því er það hluti af ráðgjöfinni í Bjarmahlíð að vera valdeflandi og benda á að ofbeldi á aldrei rétt á sér. Mikilvægt að við getum farið í öflugt fræðslu og forvarnarstarf. 

Bjarmahlíð veitir svokallaða lágþröskuldaþjónustu sem miðar að því að grípa þolandann, valdefla og að vísa í viðeigandi úrræði sem Bjarmahlíð er í samstarfi við eða benda fólki á utanaðkomandi úrræði. Með öðrum orðum að þolandinn þarf ekki að rekast á veggi kerfisins heldur fær leiðsögn sem greiðir leiðina. 

Lögð er áhersla á teymisvinnu þeirra stofnana og samtaka sem koma að þjónustu við þolendur ofbeldis. Gott samstarf er við velferðarþjónustu sveitarfélaganna, heilsugæslu, lögreglu, kvennaráðgjöfina og mannréttindastofu. Auk þess vinnur Bjarmahlíð mjög náið með Aflinu sem veitir áfallamiðaða ráðgjöf til þolenda þeim að kostnaðarlausu sem og Kvennaathvarfinu og Píetasamtökunum. Teymisvinna þessara aðila verður til þess að fólk fær skjótari þjónustu og fær þann stuðning sem það þarfnast í áfalli. 

Þolendum er mætt í hlýlegu og öruggu umhverfi á þeirra forsendum og þeim að kostnaðarlausu. Þetta er áfallamiðuð þjónusta sem er sérsniðin að þeim sem verða fyrir ofbeldi af einhverju tagi. 

Markmið Bjarmahlíðar er að efla fræðslu og umfjöllun um eðli og afleiðingar ofbeldis, ásamt því gefa skýr skilaboð um að ofbeldi sé ekki liðið. Fyrirhuguð er forvarnar-og fræðsluherferð þar sem vonast er til að ná til sem flestra 16 ára og eldri, en það er sá hópur sem fær þjónustu Bjarmahlíðar. Eins og algengt er með grasrótarstarf er Bjarmahlíð rekin að mestu leiti á styrkjum frá velferðarkerfinu sem og fyrirtækjum og öðrum stofnunum. Brýnt er að samfélagið horfist í augu við vandann sem við er að etja og leggi starfinu lið með því að úrræði eins og Bjarmahlíð fái stöðugt fjármagn af fjárlögum til þess að starfið geti eflst og þróast. Það er þjóðfélagslega hagkvæmt að byggja upp sterka einstaklinga.“

Frekari upplýsingar um Bjarmahlíð má finna á heimasíðu þeirra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Þættir um íslenskt grín fengu enga endurgreiðslu – Skýringar á því voru ófullnægjandi

Þættir um íslenskt grín fengu enga endurgreiðslu – Skýringar á því voru ófullnægjandi
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Sæþór segir að Sanna sé ekki vinsæl innan Sósíalistaflokksins – „Ekki hægt að hafa fulltrúa sem vinnur ekki með flokknum“

Sæþór segir að Sanna sé ekki vinsæl innan Sósíalistaflokksins – „Ekki hægt að hafa fulltrúa sem vinnur ekki með flokknum“
Fréttir
Í gær

Borgarfulltrúi Framsóknar segir að krafan um bílastæði sé eðlileg – „Reykjavík er ekki Kaupmannahöfn eða Osló“

Borgarfulltrúi Framsóknar segir að krafan um bílastæði sé eðlileg – „Reykjavík er ekki Kaupmannahöfn eða Osló“
Fréttir
Í gær

Uppnám í Hafnarfirði – Félagi eldri borgara úthýst um næstu áramót

Uppnám í Hafnarfirði – Félagi eldri borgara úthýst um næstu áramót
Fréttir
Í gær

Fékk neitun um ríkisborgararétt vegna 10 þúsund króna

Fékk neitun um ríkisborgararétt vegna 10 þúsund króna
Fréttir
Í gær

Sviplegt fráfall – Söngvari At the Gates látinn aðeins 52 ára að aldri

Sviplegt fráfall – Söngvari At the Gates látinn aðeins 52 ára að aldri
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi fallhlífarhermaður fyrir dóm vegna morða sem áttu sér stað fyrir rúmum 50 árum

Fyrrverandi fallhlífarhermaður fyrir dóm vegna morða sem áttu sér stað fyrir rúmum 50 árum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Bleika slaufan hefur alltaf snert við mér“

„Bleika slaufan hefur alltaf snert við mér“