fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Fókus

Sjöfn toppar hátíðarsteikina í ár með andalifur og trufflum

Fókus
Þriðjudaginn 13. desember 2022 17:02

Í þættinum Matur og heimili í kvöld framreiðir Sjöfn Þórðar hátíðarsteik ásamt fleira góðgæti sem á vel við fyrir jóla- og áramótagleðina sem fram undan er. MYND/ERNIR.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þessa dagana eru margir að huga að hátíðarmatnum og langar að prófa nýja rétti, sem sumum finnst vera áskorun enda margir vanir að vera ávallt með það sama og komnir með skothelda eldunaraðferð. Þar sem matur er manns megin og það er svo gaman að gleðja fólkið sitt með kræsingum sem hitta í mark er ekkert skemmtilegra en að prófa nýja hluti sem steinliggja. Það skemmtilega við jólahátíðina eru einmitt kræsingarnar sem bornar eru fram og samvera fjölskyldu og vina við matargerðina og borðhaldið.

Í þættinum Matur og Heimili á Hringbraut í kvöld mun Sjöfn töfra fram dýrindis nautasteik, Turnbauta, ásamt ljúffengu meðlæti sem er meðal uppskrifta í nýjustu uppskriftabókinni frá Kjötkompaní sem ber heitið Hátíðarveisla. Í Turnbautann eru notaðar þykkar nautalundasteikur úr miðri lundinni sem kallast Chateaubriand og Sjöfn fær í Kjötkompaní. Með réttri eldun verða þær dúnmjúkar og áferðin ómótstæðileg, þetta eru steikur sem bráðna í munni og steinliggja.

Það vefst fyrir mörgum að elda nautalundina og tryggja að eldunin sé fullkomin. Sjöfn gefur góð ráð þegar kemur að því að fullkomna nautalundina og hversu auðvelt það er í raun og veru að fara eftir uppskriftum og gera þær að sínu.

„Það sem skiptir mestu máli er að elda nautið rétt og fylgja leiðbeiningunum vel eftir,“ segir Sjöfn og nefnir jafnframt að listin sé að fylgjast vel með kjarnhitanum. Síðan er líka lykilatriðið að vera með ljúffengt meðlæti, í þessu tilviki eru það andalifur og trufflur sem toppa máltíðina og matarupplifunin verður stórkostleg.“

Ævintýraljómi  hátíðarmatarins verður í forgrunni í kvöld. Jólalegur og skemmtilegur þáttur fram undan á Hringbraut í kvöld, fyrst klukkan 19.00 og aftur klukkan 21.00.

Brot úr þætti kvöldsins má sjá hér:

Matur og heimili stikla - 13 desember
play-sharp-fill

Matur og heimili stikla - 13 desember

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Klípan sem allir Íslendingar lenda í – Á að gefa þjórfé eða ekki?

Klípan sem allir Íslendingar lenda í – Á að gefa þjórfé eða ekki?
Fókus
Í gær

Sagan á bak við Frank Mills

Sagan á bak við Frank Mills
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hvað varð um leikkonuna úr Shining sem sneri baki við Hollywood? – „Ég var stjarna“

Hvað varð um leikkonuna úr Shining sem sneri baki við Hollywood? – „Ég var stjarna“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Stórbrotið atvik í Pallborði Vísis – „Þetta er fáránleg spurning“

Stórbrotið atvik í Pallborði Vísis – „Þetta er fáránleg spurning“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segja þessa fæðu ekkert hafa með íslenska karlmennsku að gera – „Ertu maður eða mús?“

Segja þessa fæðu ekkert hafa með íslenska karlmennsku að gera – „Ertu maður eða mús?“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sophia Bush kemur út úr skápnum – Blæs á kjaftasögurnar um hvernig nýja sambandið byrjaði

Sophia Bush kemur út úr skápnum – Blæs á kjaftasögurnar um hvernig nýja sambandið byrjaði
Hide picture