Húsið er 125,7 fermetrar og ásett verð er 79,9 milljónir. Það stendur á 3.580 fermetra eignarlóð og eru fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús og pall með heitum potti.
Húsið er timburhús á steyptri plötu með hita í gólfum en húsið er með heitu vatni frá hitaveitu. Allar innréttingar og hurðir eru úr svartri eik og parketlagt gólf nema í votrýmum, þar eru flísar. Öll lýsing í húsinu er hönnuð af Lumex, blöndunartæki frá Ísleifi Jónssyni. Húsið er einstaklega vandað og hefur hljóðeinangrunarpanel í lofti stofu og eldhúss.
Hægt er að skoða fleiri myndir og lesa nánar um eignina á fasteignavef DV.