fbpx
Þriðjudagur 13.maí 2025
Fréttir

Ólöf hyggst bjóða sig fram til forseta ASÍ – Segir Sólveigu, Ragnar og Vilhjálm hafa fórnað trúverðugleika hreyfingarinnar

Máni Snær Þorláksson
Föstudaginn 7. október 2022 12:21

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ólöf Helga Adolfsdóttir hefur tekið þá ákvörðun að bjóða sig fram til forseta ASÍ á þingi sambandsins næstkomandi mánudag. Ólöf greinir frá þessu í yfirlýsingu sem hún sendi á fjölmiðla í dag.

Í yfirlýsingunni segir Ólöf að Alþýðusambandið sé eitt það dýrmætasta sem launafólk á Íslandi á. „Að setja það baráttulaust í hendur fólks sem lætur eigin valdahagsmuni ganga fyrir hagsmunum almenns félagsfólks væri ámælisvert,“ segir Ólöf í yfirlýsingunni.

„Ég hef því tekið þá ákvörðun að bjóða mig fram til forseta ASÍ á þingi sambandsins sem hefst nú á mánudag.“

Ólöf segist hafa kynnst því af eigin raun hversu mikilvægt það er fyrir vinnandi fólk að eiga skjól í sínu stéttarfélagi. „En ég hef líka séð hveru illa það fer með fólk að eiga ekki slíkt skjól. Fyrir rúmu ári síðan var mér sagt upp störfum sem hlaðmaður á Reykjavíkurflugvelli af þeirri ástæðu einni að ég vildi sinna starfi mínu sem trúnaðarmaður á vinnustaðnum,“ segir hún en málið vakti mikla athygli í fjölmiðlum á sínum tíma.

„Stéttarfélag mitt, Efling, tók málið föstum tökum og höfðaði mál fyrir Félagsdómi. Samhliða var ráðiðst í fjölmiðlaherferð og ég – sem hafði aldrei birst í fjölmiðlum nema sem barn að halda tombólu – var til viðtals í öllum helstu miðlum landsins. Formaður og framkvæmdastjóri Eflingar, Sólveig Anna Jónsdóttir og Viðar Þorsteinsson, stilltu sér upp mér við hlið. Framleidd voru myndbönd, skrifaðar fréttir og greinar og fólk kallað saman til mótmæla. “

Ólöf segir að þegar aðalmeðferð hafi farið fram í máli hennar fyrir Félagsdómi hafi Sólveig Anna þagað þunnu hljóði. „Engin frétt var birt á síðu Eflingar, hvað þá myndefni og ekki var kallað til mótmæla eða sett fram ákall um samstöðu. Ástæða þessara sinnaskipta var einfaldlega sú að ég hafði hreyft öðrum skoðunum á starfi og framtíð Eflingar en Sólveig Anna Jónsdóttir,“ segir Ólöf.

„Ég gat því ekki annað en dregið þann lærdóm að opinber stuðningur félagsins míns væri háður því að það þjónaði pólitískum hagsmunum formannsins. Þetta var ekki aðeins sárt og óþægilegt fyrir mig, heldur ógnar svona framkoma réttindum og hagsmunum allra þeirra tugþúsunda einstaklinga sem eru félagar í Eflingu.“

Þá fullyrðir Ólöf að nú vilji Sólveig Anna taka yfir ASÍ í valdabandalagi við Ragnar Þór Ingólfsson og Vilhjálm Birgisson, taka yfir Alþýðusamband Íslands.

„Í gegnum hópuppsagnir á skrifstofu Eflingar fórnuðu þau trúverðugleika verkalýðshreyfingarinnar og félagsfólki fyrir eigin valdahagsmuni. Óljóst er hvað þríeykið vill með sambandið. En það hefur komið skýrt fram að þau munu ekki hafa rúm fyrir aðrar skoðanir en sínar eigin og vilja stjórna í krafti meirihlutaræðis. Allir sem mótmæla þeim fá yfir sig fúkyrðaflaum – og þegar önnur sjónarmið eru sett fram er þeim mætt með hótunum og offorsi.“

Ólöf bendir á að hún hafi verið virk í verkalýðsbaráttunni undanfarin ár og að hún hafi setið í stjórn Eflingar frá árinu 2019. Þá hafi hún unnið láglaunastörf alla sína starfsævi að frátöldum þeim mánuðum sem hún gegndi embætti varaformanns Eflingar.

„Sem forseti ASÍ hef ég áhuga á að að leiða fólk saman og starfa með öllum aðildarfélögum innan hreyfingarinnar. Ég vil leggja mitt af mörkum til að hreyfingin þjóni áfram öllu sínu félagsfólki, óháð pólitískum skoðunum þess. Ég trúi að lýðræðið snúst ekki aðeins um atkvæðagreiðslu eða hausatalningu, heldur ferli og umræðu þar sem öll sjónarmið skipta máli. Ég trúi á ASÍ sem breiðfylkingu. 

Framundan er þungur vetur kjaraviðræðna þar sem við verðum að snúa bökum saman og ná fram raunverulegum kjarabótum. Ég tel mikilvægt að verkalýðshreyfingin sé bæði sameinuð og sterk og býð fram mína krafta til að vinna að því. “

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Edda minnist Lalla Johns – „Lalli var alltaf blíðan uppmáluð, brosandi gleðigjafi og góður við allt og alla“

Edda minnist Lalla Johns – „Lalli var alltaf blíðan uppmáluð, brosandi gleðigjafi og góður við allt og alla“
Fréttir
Í gær

Uggandi yfir uppsögnum: „Þjóðminjasafn án fornleifafræðinga“

Uggandi yfir uppsögnum: „Þjóðminjasafn án fornleifafræðinga“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kom fyrir myndavélum á klósetti Airbnb íbúðar sinnar – Vildi bera getnaðarlimi gestanna saman við sinn

Kom fyrir myndavélum á klósetti Airbnb íbúðar sinnar – Vildi bera getnaðarlimi gestanna saman við sinn
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sólveig Anna lætur „megins-straums femínista“ heyra það – Vinsælt áhugamál kvenna sem hafi náð jafnrétti

Sólveig Anna lætur „megins-straums femínista“ heyra það – Vinsælt áhugamál kvenna sem hafi náð jafnrétti