fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
Pressan

Anna komst inn í Mar-a-Lago og hitti Trump – Hvað vildi hún? Hver er hún?

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 6. september 2022 05:56

Anna með Donald Trump. Skjáskot/YouTube

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar hin fallega og heillandi Anna de Rothschild birtist á Palm Beach á Flórída tók ríka og valdamikla fólkið strax vel á móti henni. Hún fékk aðgang að Mar-a-Lago, heimili Donald Trump fyrrum forseta, þar sem íhaldssamir Repúblikanar flykkja sér um forsetann fyrrverandi. Hún sat fyrir á ljósmynd með Trump, áhrifamönnum úr Repúblikanaflokknum og auðmönnum sem fjármagna starfsemi Repúblikanaflokksins.

„Við héldum að afi hennar ætti peninga og að hann væri olígarki,“ sagði Paul Barton, íhaldssamur fjárfestir, í samtali við Pittsburgh Post-Gazette.

Áfallið var því mikið í mars þegar í ljós kom að það eina sem Anna hafði sagt satt um var að skírnarnafn hennar væri fjórir stafir. Það var þó ekki Anna, heldur Inna og eftirnafnið hljómaði ekki mjög enskt, Jastjysjyn.

Hún ólst ekki  upp á auðmannsheimili í Evrópu, heldur í Illinois og var dóttir úkraínsks vöruflutningabílstjóra. Reynsla hennar úr viðskiptaheiminum samanstóð af gjaldþrota góðgerðasamtökum sem eru til rannsóknar vegna gruns um glæpsamlegt athæfi.

Anna var með fölsuð bandarísk og kanadísk vegabréf í fórum sínum. Hvort hún var útsjónarsamur svikahrappur, flugumaður eða eitthvað þaðan af verra er enn óljóst.  Hvað hún ætlaði sér að fá út úr því að vera í félagsskap ríka fólksins á Palm Beach er ekki vitað en verið er að rannsaka það.

Charles Marion, sérfræðingur í öryggismálum sem starfaði áður fyrir Secret Service, sagði í samtali við Pittsburgh Post-Gazette að spurningin sé hvort um svikastarfsemi hafi verið að ræða eða öryggisógn.

Það tók Önnu, sem er rússneskumælandi, mjög skamman tíma að komast í návígi við þungaviktarfólk í bandarískum stjórnmálum og var ekki erfitt.

Alríkislögreglan FBI rannsakar nú hvað Önnu gekk til með þessu og hvort hún tengist skipulögðum rússneskum glæpasamtökum eða jafnvel rússneskum yfirvöldum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

ABBA-dæturnar fá stóran arf

ABBA-dæturnar fá stóran arf
Pressan
Í gær

Datt ofan í kamar og sat föst í saur upp að mitti í þrjár klukkustundir

Datt ofan í kamar og sat föst í saur upp að mitti í þrjár klukkustundir
Pressan
Í gær

Léttist um 74 kíló – Algeng mistök foreldra kostuðu hana nær allt

Léttist um 74 kíló – Algeng mistök foreldra kostuðu hana nær allt
Pressan
Í gær

Fjölskyldan hvarf 1958 – Fannst nýlega

Fjölskyldan hvarf 1958 – Fannst nýlega
Pressan
Fyrir 4 dögum

Missti son sinn og eiginmann þegar Titan kaftækið fórst – Lýsir því hvernig líkamsleifum þeirra var skilað heim

Missti son sinn og eiginmann þegar Titan kaftækið fórst – Lýsir því hvernig líkamsleifum þeirra var skilað heim
Pressan
Fyrir 4 dögum

Lögreglukona svipti sig lífi nokkrum mánuðum eftir að eiginmaðurinn var myrtur – ekki var þó allt sem sýndist

Lögreglukona svipti sig lífi nokkrum mánuðum eftir að eiginmaðurinn var myrtur – ekki var þó allt sem sýndist